
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Upphitun: FH - Grindavík, Pepsi-deildin | |
|
|
Grindavík Gengi Grindavíkur hefur verið misjafnt á þessu tímabili. Þeir sitja nú í 9. Sæti deildarinnar með 18 stig, en eiga þó 2 leiki til góða á næsta lið fyrir ofan, Breiðablik. Þeir hafa skorað 24 mörk og fengið á sig 29 það sem af er. Hægt er að setja spurningamerki við heilsu Grindvíkinga í þessum leik. Flensufaraldurinn náði í skottið á þeim á dögunum eins og frægt er orðið og var síðustu leikjum þeirra frestað af þeim sökum. Hvort þeir hafi náð sér að fullu vitum við ekki, en það verður bara að koma í ljós. Síðasti leikur Grindvíkinga fyrir pest var gegn Þrótti á Valbjarnarvelli þann 9. ágúst. Þar fóru Grindvíkingar með sigur af hólmi, 5-1. Þeir eru taplausir í 4. leikjum í röð og spurningin er hvort þeir nái að halda þeirri sigurgöngu áfram þrátt fyrir veikindi. Síðasti leikur liðanna í deildinni var á Grindavíkurvelli þann 14. júní. Sá leikur fór 3-0 fyrir FH og getur undirritaður staðfest það að sigurinn var síst of stór, enda sóttu FH-ingar án afláts í 90 mínútur. Athygli vakti hve gott veðrið var í Grindavík þann daginn, sól, c.a. 20 stiga hiti og LOGN! Fyrri leikir liðanna á Kaplakrikavelli Síðasti leikur liðanna á heimavelli okkar FH-inga var virkilega þreytandi á að horfa. Endaði hann 0-1 fyrir Grindavík í leik þar sem að FH-ingar réðu lögum og lofum, sóttu án afláts án þess að skora mark. Eftirminnilegasti leikur liðanna er þó án efa leikurinn árið 2005, sem FH-ingar unnu 8-0. 27.5.1995 FH 2 – 0 Grindavík Efsta deild (Sjóvá-Almennra deildin) 16.9.2001 FH 0 – 2 Grindavík Efsta deild (Símadeildin) 09.6.2002 FH 3 – 2 Grindavík Efsta deild (Símadeildin) 18.6.2003 FH 2 – 1 Grindavík Efsta deild (Landsbankadeildin) 23.6.2004 FH 4 – 1 Grindavík Efsta deild (Landsbankadeildin) 10.8.2005 FH 8 – 0 Grindavík Efsta deild (Landsbankadeildin) 28.6.2006 FH 2 – 0 Grindavík Efsta deild (Landsbankadeildin) 17.8.2008 FH 0 – 1 Grindavík Efsta deild (Landsbankadeildin) FH Við FH-ingar erum efstir sem fyrr í deildinni. Við erum með 43 stig, 11 stigum á undan næsta liði (Fylkir) og 13 stigum á undan KR, sem þó á leik til góða. Við höfum skorað heil 49 mörk (13 mörkum meira en Stjarnan, sem hefur skorað næstflest mörkin) en fengið á okkur 17. Síðasti leikur liðsins var gegn Fjölnismönnum í Grafarvogi síðastliðinn laugardag. Sá leikur endaði 4-1 fyrir okkar mönnum. Sigurinn var aldrei í hættu (nema í stöðunni 0-0, auðvitað...) og oft á tíðum spiluðu okkar menn flottan fótbolta. Mörkin skoruðu þeir Atli Viðar Björnsson (2), Tryggvi Guðmundsson og Björn Daníel Sverrisson. Á sama tíma tapaði KR fyrir Fylkismönnum, 4-2, og þar með komust okkar menn í nokkuð vænlega stöðu fyrir komandi umferðir. Spurning hvort áætlanir KR-inga um að ganga í Dönsku deildina hafi skaðast vegna þessa, aldrei að vita... Tommy Nielsen var ekki með í síðasta leik vegna leikbanns en hann ætti að geta leikið með á laugardaginn. Guðmundur Sævarsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson eru ennþá meiddir en Atli Guðnason ætti að vera klár á ný. Hugsanlegt byrjunarlið: Daði Pétur – Sverrir – Tommy – Hjörtur L. Matthías – Davíð – Björn Daníel Óli Palli – Atli Viðar – Tryggvi G.
Þess ber að geta að frítt verður á leikinn, þökkum Actavis fyrir það. Þá munu leikmenn liðsins árita alls konar spjöld og dóterí eftir leik þannig að það borgar sig að mæta með allt sitt FH-dót. Allir að mæta á völlinn, hafa gaman og styðja okkar menn. Áfram FH! |