FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Upphitun: Fjölnir - FH, Pepsi-deildin
Árni Freyr Helgason    Fös, 14. ágúst 2009   

Þetta er upphitun fyrir leik FH og Fjölnis í Pepsi-deildinni sem fer fram á Fjölnisvelli á morgun kl. 16:00. Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið, Fjölnismenn verða að vinna sem flesta leiki til að halda sér uppi í Pepsi-deildinni og FH-ingar þyrftu helst að hirða sem flest stig úr öllum leikjum sem eftir eru til að halda forskoti sínu á KR-inga. Svo er að sjálfsögðu mikilvægt fyrir bæði lið að vinna leikinn til að komast á sigurbraut á ný.

 


Fjölnir

Fjölnismönnum hefur ekki gengið sem skyldi á tímabilinu. Þeir sitja í 11. og næstneðsta sæti deildarinnar með 12 stig eftir 16 leiki. Þeir hafa skorað 19 mörk og fengið á sig 32. Ljóst er að liðið er mikið skaddað fyrir leikinn, en 4 leikmenn verða ekki með vegna leikbanns, þar á meðal leikmaður sem að er okkur FH-ingum góðkunnur, Magnús Ingi Einarsson, sem að er uppalinn FH-ingur og lék allmarga leiki með meistaraflokki FH á sínum tíma.

Síðasti sigurleikur Fjölnis var gegn Val þann 23. júlí síðastliðinn. Síðan þá hafa þeir gert eitt jafntefli, við Grindavík, og tapað tvemur leikjum, gegn Þrótti og ÍBV. Þeir eru því líklega ákveðnir í því að koma til baka. Í tilefni af því gaf þjálfari liðsins, Ásmundur Arnarsson, út pistil á heimasíðu Fjölnis sem að lesa má hér: http://fjolnir.is/fjolnir/knattspyrna/undirsida-fretta_kdf/?cat_id=34031&ew_0_a_id=337768

Síðasta viðureign liðanna var á Kaplakrikavelli 1. júní síðastliðinn. Sá leikur fór 3-0 fyrir okkar mönnum í frekar óspennandi leik þar sem að sigur FH-liðsins var aldrei í hættu. Fjölnisliðið hefur þó styrkt sig síðan þá, þeir fengu til sín nokkra leikmenn í félagaskiptaglugganum sem að hafa reynst ágætlega hingað til. Það hlýtur þó að jafnast út þar sem að heilir 4 leikmenn eru í leikbanni, eins og minnst var á hér að ofan.

Fyrri viðureignir liðanna á Fjölnisvelli

Liðin hafa aðeins leikið einu sinni áður á Fjölnisvelli, enda léku Fjölnismenn í efstu deild í fyrsta sinn síðasta sumar. Sá leikur var skrautlegur. Leikar enduðu 3-3 í ótrúlegum leik þar sem að Fjölnismenn komust í 3-0 en okkar menn komu til baka og náðu að lokum jafntefli.

24.8.2008 Fjölnir 3 – 3 FH Efsta deild (Landsbankadeildin)

FH

FH-ingar sitja á toppi deildarinnar þrátt fyrir tap gegn KR síðastliðinn sunnudag. Liðið er með 40 stig, hefur skorað heil 45 mörk en fengið á sig 16 mörk (fjórðunginn gegn KR í títtnefndum leik...).

Síðasti leikur liðsins var gegn KR á Kaplakrikavelli síðastliðinn sunnudag. Þetta var gríðarlega kaflaskiptur leikur sem endaði með sigri KR-inga en ekki skal fara út í þá sálma eitthvað frekar. Atli Guðnason sýndi þó og sannaði að hann á fullt erindi inn í landslið Íslendinga, en hann skoraði 2 mörk með tiltölulega stuttu millibili, í bæði skiptin eftir flott spil upp kantinn.

En þá að liði FH-inga. Tommy Nielsen fékk sitt fjórða gula spjald í leiknum gegn KR og getur því ekki leikið með FH-ingum. Guðmundur Sævarsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson eru enn frá vegna meiðsla en Pétur Viðarsson kom inn á gegn KR og verður því væntanlega í hópnum. Svo verður Sverrir Garðarsson væntanlega í hóp FH á ný, en hann var enn hálf vankaður eftir samstuðið í Stjörnuleiknum þegar að KR-leiknum kom.

Hugsanlegt byrjunarlið:

Daði

Guðni – Dennis – Freyr – Logi
Matthías – Davíð – Tryggvi G.
Óli Palli – Atli Viðar – Atli Guðna

Veðurspáin fyrir daginn er fín þannig að það er um að gera að flykkjast upp í Grafarvog að styðja lið FH til sigurs. Fjölnismenn munu berjast eins og ljón, þá er um að gera að berjast á móti. Áfram FH!

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson