|
Atli Guðnason tæpur fyrir leikinn gegn Fjölni |
|
Jónas Ýmir Jónasson
Fim, 13. ágúst 2009 |
|
|
Besti leikmaður Íslandsmótsins í umferðum 8-15 Atli Guðnason varð að fara af leikvelli gegn KR síðasta sunnudag þegar hann meiddist á ökkla. Atli hefur verið hjá sjúkraþjálfara alla vikuna og verður alveg fram í næstu viku, eða þangað til að hann verður góður í fætinum. "Ég býst við því að ég verði orðinn klár fyrir leikinn á móti Grindavík en það er heldur tæpt að ég nái Fjölnisleiknum, en það kemur í ljós á föstudaginn" sagði Atli Guðnason við FHingar.net
|