|
Atli Viðar Björnsson kom inná gegn Slóvakíu |
|
Jónas Ýmir Jónasson
Fim, 13. ágúst 2009 |
|
|
Okkar nýjasti landsliðsmaður Atli Viðar Björnsson kom inn á sem varamaður á 88. mínútu í vináttulandsleiknum gegn Slóvakíu í gærkvöldi. Atli kom inná í stað Pálma Rafns Pálmasonar og spilaði á hægri kanti þær mínútur sem hann var inn á. Við óskum Atla Viðari til hamingju með þennan merka áfanga og vonumst eftir að hann fái tækifæri með hópnum í haust. Hjörtur Logi Valgarðsson spilaði einnig í gær með 21 ár landsliði Íslands sem tapaði 0-2 gegn Tékkum.
|