
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Upphitun: FH - KR, Pepsi-deildin | |
|
|
KR KR-ingar sitja í 2. Sæti deildarinnar með 27 stig, 13 stigum á eftir FH-ingum. Þeir eiga þó leik til góða á okkar menn vegna þátttöku í Evrópukeppni. Þeir hafa skorað 30 mörk í deildinni og fengið á sig 18. Þeir eru skipulagðir, spila þétta vörn og beita gjarnan skyndisóknum. Þeir eru, ásamt okkur FH-ingum, eina liðið sem að hefur hirt stig af Stjörnumönnum á gervigrasvellinum í Garðabæ. Síðasti leikur liðanna fór fram á KR-vellinum í Frostaskjóli. Sá leikur fór 2 – 1 fyrir FH, en KR-ingar höfðu komist yfir í leiknum með marki Bjarna Guðjónssonar, en mörk frá Matta Vill og Atla Guðna tryggðu okkur FH-ingum enn einn sigurinn yfir KR. KR-ingar leitast án efa við að kveða niður sína „FH-grýlu“, en KR-ingar hafa ekki sigrað í leik gegn FH síðan árið 2003. Fyrri leikir liðanna á Kaplakrikavelli Liðin hafa leikið 10 leiki á Kaplakrikaveli, allir nema þrír leikir hafa endað með sigri FH. 20.8.1994 FH 1 – 2 KR Efsta deild (Trópi-deildin) 26.7.1995 FH 2 – 2 KR Efsta deild (Sjóvá-Allmennra deildin) 27.5.2001 FH 2 – 0 KR Efsta deild (Símadeildin) 29.5.2002 FH 1 – 0 KR Efsta deild (Símadeildin) 20.9.2003 FH 7 – 0 KR Efsta deild (Landsbankadeildin) 06.7.2004 FH 1 – 1 KR Efsta deild (Landsbankadeildin) 07.8.2005 FH 2 – 0 KR Efsta deild (Landsbankadeildin) 06.7.2006 FH 2 – 0 KR Efsta deild (Landsbankadeildin) 30.8.2007 FH 5 – 1 KR Efsta deild (Landsbankadeildin) 25.5.2008 FH 2 – 0 KR Efsta deild (Landsbankadeildin) FH Við FH-ingar erum efstir í deildinni sem fyrr með 40 stig, 13 stigum á undan KR-ingum. Við höfum skorað 43 mörk og fengið á okkur 12. Síðasti leikur okkar var gegn spútníkliði Stjörnunnar á gervigrasvellinum í Garðabæ síðastliðinn fimmtudag. Vart þarf að minna menn á að þar fóru FH-ingar með stórsigur af hólmi, 4 – 1. Markaskorarar FH voru Hjörtur Logi Valgarðsson, Matthías Vilhjálmsson (2) og landsliðsmaður okkar Íslendinga, Atli Viðar Björnsson. Við urðum þar með fyrstir til að leggja Stjörnumenn að velli á heimavelli, en þar höfðu þeir ekki tapað í heilt ár. Við munum sennilega reyna að nýta okkur þann meðbyr. Þeir Davíð Þór og Alexander Söderlund, sem voru frá vegna leikbanns í síðasta leik, geta hafið leik á ný í kvöld. Það er þó deginum ljósara að þeir eru ekkert að fara að labba inn í liðið. Hjörtur Logi, Freyr Bjarnason og Dennis Siim léku allir gegn Stjörnunni á fimmtudaginn og ættu því að vera í leikmannahópi liðsins í kvöld. Sverrir Garðarsson fékk höfuðáverka eftir samstuð í Stjörnuleiknum en vonast til að vera með í kvöld, skv. Spjallinu (nánar tiltekið honum Ara). Dennis var skipt út af í lok leiks en það hefur sennilega verið gert til að hvíla hann, enda nýkominn til baka eftir erfið meiðsli. Hugsanlegt byrjunarlið Daði Guðni Páll – Dennis – Tommy – Hjörtur Logi Matthías – Davíð Þór – Tryggvi Guð Ólafur Páll – Atli Viðar – Atli Guðna Leikurinn verður sýndur á Stöð2 sport en við hvetjum alla FH-inga og almenna fótboltaáhugamenn að mæta á þennan 6 stiga leik. Áfram FH! Leikskrá leiksins má finna hér
|