
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Umfjöllun: FH sigur á "teppinu" | |
|
|
Stjarnan og FH mætust í leiðinda veðri á "plastinu" í Garðabænum í kvöld og var leikurinn góð skemmtun en 5 mörk litu dagsins ljós.
Fyrsta markið kom á 18. mínútu leiksins en þá kom Hjörtur Logi Valgarðsson FH-ingum yfir. Hann tók innkast á vinstri kantinum sem hann henti á Atla Guðnason sem gaf boltann inn í teiginn á Hjört Loga sem hafði tekið hlaup inn í teig og Hjörtur kláraði þröngt færið eins og hinn besti framherji og FH-ingar því komnir yfir svona nokkuð gegn gangi leiksins. FH-ingar sóttu mikið meira eftir þetta og voru þeir oftar en ekki komnir í ákjósanleg færi þegar þeir brenndu af, í eitt skipti kingsaði Atli Viðar boltann í dauðafæri en FH-ingar juku forystu sína á 34. mínútu. Eftir þunga sókn þar sem meðal annars Matthías Vilhjálmsson átti skalla í slá þá barst boltinn til Atla Viðars Björnssonar sem kom FH-ingum í 2-0. Lítið markvert gerðist eftir þetta og var staðan því 0-2 FH-ingum í vil þegar Erlendur Eiríksson flautaði til hálfleiks. FH-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn með látum og komust í 3-0 eftir 7 mínútna leik í seinni hálfleik en þar var að verki Matthías Vilhjálmsson, hann fékk boltann eftir að Atli Guðnason skallaði að marki Stjörnumanna og potaði Matthías boltanum í stöng og inn. FH-ingar vildu svo fá vítaspyrnu á 54. mínútu þegar Jóhann Laxdal virtist toga Atla Guðnason niður í teignum en Erlendur Eiríksson dæmdi ekkert. Atli Viðar fékk svo enn eitt færið fyrir FH á 57. mínútu en honum tókst ekki að koma boltanum í netið. Stuttu seinna átti Tryggvi Sveinn Bjarnason ágætis skalla eftir hornspyrnu fyrir Stjörnuna en Daði Lárusson greip boltann í marki FH. Lítið markvert gerðist næsta korterið en Ellert Hreinsson fékk dauðafæri á 71. mínútu en hann var alltof lengi að athafna sig í færinu og tók hann skot úr þröngu færi sem Daði Lárusson átti ekki í vandræðum með. Á 74. mínútu bætti Ellert Hreinsson upp fyrir mistök sín nokkrum mínútum áður þegar hann skoraði eftir góða stungusendingu frá Birni Pálssyni, staðan því orðin 1-3 og því smá von fyrir Stjörnumenn. FH-ingar gerðu svo út um þær vonir mínútu síðar en þá skoraði Matthías Vilhjálmsson sitt annað mark í leiknum og kom FH-ingum í 4-1. Tryggvi Guðmundsson átti fína aukaspyrnu á 79. mínútu fyrir FH-inga sem Bjarni Þórður blakaði í horn, en mikill hiti var kominn í menn á þessum tímapunkti. Lítið markvert gerðist það sem eftir lifði leiks og lokastaðan var því 1-4 fyrir FH sem eru því með 13 stiga forskot á KR-inga á toppnum en KR-ingar eiga leik til góða. Byrjunarlið Stjörnunar (4-2-3-1): Bjarni Þórður Halldórsson - Jóhann Laxdal, Guðni Rúnar Helgason, Tryggvi Sveinn Bjarnason, Hafsteinn Rúnar Helgason - Björn Pálsson, Birgir Hrafn Birgisson - Arnar Már Björgvinsson, Ellert Hreinsson, Halldór Orri Björnsson - Alfreð Elías Jóhannsson.
Dómari: Erlendur Eiríksson, ágætur. |