
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Pepsi-Deildin: Stjarnan – FH, Upphitun | |
|
|
Pepsi-Deildin: Stjarnan – FH, Upphitun Hér er upphitun fyrir leik FH gegn Stjörnunni á plastvellinum í Garðabæ, sem fer fram næsta kvöld. Má búast við ágætis leik enda hefur Stjarnan sýnt fína takta á köflum og eins og allir vita hafa FH-ingar verið á miklu skriði í deildinni, þó ekki megi segja það sama um bikarinn og Evrópukeppnina. Stjarnan Stjarnan er í 5. Sæti með 23 stig, 14 stigum á eftir okkur FH-ingum. Þeir hafa skorað næstflest mörk í deildinni, eða 33 talsins, og hafa fengið á sig 21. Þeir beita skyndisóknum, eru fljótir fram en hafa einnig sterka vörn. Völlur þeirra hefur verið mikið í umræðunni þetta sumarið en eins og flestir vita spila Stjörnumenn á gervigrasi. Þar hafa þeir ekki tapað leik í sumar en hafa hins vegar gert eitt jafntefli, en það kom gegn KR hinn 2. Júlí. Á móti kemur að þeir hafa aðeins unnið einn leik á útivelli og gert eitt jafntefli, en í öllum hinum leikjunum hefur liðið beðið lægri hlut. Segir okkur sitthvað um forskot Stjörnumanna á mottunni, er það ekki? Fyrri leikir liðanna á Stjörnuvelli Liðin hafa aðeins leikið 2 deildarleiki á Stjörnuvelli síðan árið 1991, auk eins bikarleiks. Allir voru þessir leikir á grasi þannig að erfitt er að segja til um hvernig okkar mönnum vegnar í kvöld. Síðasti leikur liðanna var í Kaplakrikanum fyrr á þessu ári þar sem að FH-ingar fóru með 5-1 sigur af hólmi í minnisstæðum leik. 14.8.1991 Stjarnan 2 – 2 FH 1. Deild karla 07.7.1994 Stjarnan 1 – 1 FH Efsta deild karla (Trópí-deildin) 04.7.2001 Stjarnan 0 – 2 FH Coca-Cola Bikarkeppnin FH Við FH-ingar erum efstir í deildinni sem fyrr með 37 stig, 10 stiga forskot á KR sem að er í 2. Sæti. Við höfum skorað flest mörk, 39 talsins, og höfum aðeins fengið á okkur 11. (Nettó +28) Síðasti leikur FH-inga var fyrir akkúrat viku. Hann var gegn Keflavík í VISA-bikarnum, þar sem að okkar menn töpuðu 3-1 fyrir sprækum Keflvíkingum (eða réttar sagt, sprækum Símun Samuelsen). Þeir eru væntanlega staðráðnir í að koma strax til baka og verða fyrsta liðið til að leggja Stjörnumenn að velli á heimavelli. Ef það er eitthvað lið sem getur það, þá eru það við. Tveir leikmenn verða frá vegna leikbanns. Það eru þeir Davíð Þór og Alexander Söderlund, sem báðir hafa safnað 4 gulum spjöldum. Ekkert hef ég heyrt af meiðslum hjá mönnum eins og Hirti Loga, Frey Bjarna, Ásgeiri og Pétri Viðars en vænti þess þó að Dennis Siim verði í byrjunarliðinu í staðinn fyrir Davíð Þór. Nýjasti landsliðsmaður okkar FH-inga, Atli Viðar Björnsson, tekur stöðu sína í framlínunni á ný og Ólafur Páll verður væntanlega á hægri kantinum, en hann var meðal sprækustu manna í bikarleiknum í Keflavík. Hugsanlegt byrjunarlið: Daði Guðni Páll – Sverrir – Tommy – Björn Daníel Matthías – Dennis – Tryggvi Guð. Ólafur Páll – Atli Viðar – Atli Guðnason Nú skal Stjarnan liggja í valnum á heimavelli. Við hvetjum FH-inga til að fjölmenna í Garðabæinn, stúkan er lítil og því er tilvalið að skapa læti. Allir að klæðast í hvítt! Árni Freyr Helgason skrifaði. |