
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Umfjöllun: Engin Tvenna þetta árrið | |
|
|
FH og Keflavík mættust í kvöld á Sparisjóðsvellinum í Keflavík, ein breyting var á liði FH, Atli Viðar kom inn í liðið fyrir Matta Gumm sem fór til Vals í gær, Óli Palli og Hjörtur Logi komu á bekkinn. Í lið Keflavíkur kom Haraldur Freyr, nýr leikmaður þeirra inn í liðið.Skemmst er frá því að segja að Tryggvi Guðmundsson varð 35 ára í dag. Óskum við hér á fhingar.net honum til hamingju með það.
Fyrsta almennilega færi leiksins fengu FH-ingar, Atli Viðar fékk boltann inn fyrir vörn Keflvíkinga og átti skot á markið en Lasse varði vel. FH fengu fínt færi á 17 mínútu, Atli Guðna fékk boltann, lék á einn Keflvíking, gaf boltann inn í teiginn þar sem Matti Villa átti skot í varnarmann og ekkert meira varð úr þessu. Aðeins 30 sek seinna skall hurð nærri hælum hjá FH. Símun Samuelsen gaf fyrir mark FH, Jóhann Birnir átti skalla í slánna og FH heppnir. Keflavík komust yfir eftir 20 mínútur, Símun fékk boltann inn fyrir vörn FH og leit út fyrir að vera rangstæður, hljóp af sér Sverri Garðars, gaf fyrir og Tommy Nielsen setti hann í slánna og inn, sjálfsmark og staðan 1-0 fyrir Keflavík. FH fengu annað fínt færi á 22 mínútu, Björn Daníel keyrði upp vinstri vænginn, gaf fyrir, Söderlund fékk boltann en skaut yfir. Rangstöðutaktík FH var gjörsamlega að klikka fyrstu mínúturnar, á 24 mínútu komst Símun enn og aftur í gegn en Daði varði vel. Atli Viðar fékk mjög gott færi á 27 mínútu, Tryggvi Gumm með flottan bolta inn á Atla Viðar sem hamraði boltann framhjá marki Keflvíkinga. FH áttu fínt skot, rétt framhjá á 36 mínútu, Söderlund fékk boltann frá Dabba Vidd, umkringdur varnarmönnum Keflavíkur, sneri sér í hring og lét síðan vaða, rétt framhjá. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Keflavík, FH voru ekki að spila nógu vel, fengu nokkur fín færi en náðu ekki að binda endahnútinn á þau. Seinni Hálfleikur Fyrsta færi seinni hálfleiks fengu FH eftir 47 mínútur, Guðni Páll átti flotta sendingu á Matta Villa sem lét hann fara á Atla Viðar sem var kominn í gegn en hann lét Lasse verja frá sér. Keflavík komust í 2-0 á 48 mínútu þegar Hólmar Örn Rúnarsson átti sendingu inn fyrir vörn FH og enn og aftur klikkaði rangstöðutaktíkin og Símun Samuelsen átti ekki í vandræðum með að klára þetta, 2-0 og tvennan að hverfa. Leikurinn var búinn eftir 58 mínútur, Alen Sutej gaf sendingu fyrir markið, fór þvert yfir allan teiginn nema þá kom allt í einu Símun Samuelsen á ferðinni og kláraði þetta, 3-0 og Símun að fara á kostum. Á 60 mínútu fékk Jóhann Birnir sitt annað gula spjald eftir brot á Tryggva Gumm og FH því einum fleiri. FH minnkuðu muninn á 70 mínútu, Atli Guðna fékk sendingu inn fyrir frá Tryggva og kláraði þetta auðveldlega, 3-1, 20 mín eftir og FH átti séns. FH skoraði mínútu síðar en því miður var Atli Viðar rangstæður. FH skoruðu aftur á 74 mínútu en því miður aftur dæmt af, Óli Palli "braut" á Alen Sutej. Góð barátta sem var því miður ekki að skila marki. FH fengu 2 frábær færi á 84 mínútu, fyrst tók Tryggvi hornspyrnu, mikið klafs í teignum sem endar með skot sem fer í varnarmann og útaf og seinni var upp úr þeirri hornspyrnu, Tryggvi tók hornið inn í teiginn og Matti Villa átti skalla en Lasse varði. Á 87 mínútu fengu FH frábært færi, enn og aftur náðum við ekki að skora, Guðni Páll átti frábæra fyrirgjöf inn í, Atli Guðna átti skallann en beint á Lasse. |