FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

VISA-Bikarinn: Keflavík – FH, Upphitun
Guðlaugur Valgeirsson    Fim, 30. júlí 2009   
Hér er upphitun fyrir leik FH-inga gegn Keflavík sem fer fram á Keflavíkurvelli á morgun. Leikurinn er í 8-liða úrslitum VISA-Bikarsins, keppni sem að Keflvíkingar hafa unnið oftast liða (ásamt Fylki) á 21. Öldinni og við FH-ingar unnum í okkar fyrsta og hingað til eina skipti árið 2007.

Keflavík

Keflvíkingar eru í 4. Sæti Pepsi-deildarinnar með 24 stig, 13 stigum á eftir meisturunum. Þeir hafa skorað 25 mörk og fengið á sig 21. Vörn er því ekki þeirra sterkasta hlið en sóknarleikur vegur það upp að mestu. Þeir fengu nýlega til baka leikmann ársins í fyrra, Guðmund Steinarsson, sem var á láni hjá Vaduz í Liectenstein frá áramótum.

Á leið sinni í 8-liða úrslitin slógu Keflvíkingar út lið Einherja úr 3. Deildinni, sem eru einmitt lærisveinar okkar ástkæra Davíðs Örvars Ólafssonar,  svo unnu þeir nauman sigur á Þór frá Akureyri 2 – 1. Báðir leikir fóru fram í Keflavík.

Fyrri leikir á Sparisjóðsvellinum, Keflavík

Hér að neðan má sjá úrslit úr öllum leikjum FH og Keflavíkur á Keflavíkurvelli (síðar Sparisjóðsvöllurinn) síðan 1993.

23.8.1993 Keflavík 0 – 1 FH Efsta deild (Getraunadeildin)
03.9.1994 Keflavík 1 – 2 FH Efsta deild (Trópí-deildin)
05.7.1995 Keflavík 2 – 0 FH Efsta deild (Sjóvá-Almennra deildin)
10.6.2001 Keflavík 3 – 1 FH Efsta deild (Símadeildin)  
26.6.2002 Keflavík 1 – 1 FH Efsta deild (Símadeildin)  
25.7.2004 Keflavík 0 – 1 FH Efsta deild (Landsbankadeildin) 
16.5.2005 Keflavík 0 – 3 FH Efsta deild (Landsbankadeildin)
20.8.2006 Keflavík 2 – 1 FH Efsta deild (Landsbankadeildin)
20.5.2007 Keflavík 1 – 2 FH Efsta deild (Landsbankadeildin)
03.7.2008 Keflavík 3 – 1 FH VISA-bikarinn              
06.7.2008 Keflavík 1 – 0 FH Efsta deild (Landsbankadeildin)
11.5.2009 Keflavík 1 – 0 FH Efsta deild (Pepsi-deildin)                              

FH hefur unnið 5 leiki, 1 leikur hefur endað með jafntefli liðanna og Keflavík hefur unnið 6 sinnum. FH-ingar hafa ekki riðið feitum hesti í Keflavík síðustu tvö árin, en allir leikir liðanna hafa endað með sigri Keflavíkur.

FH
Við FH-ingar erum efstir í deildinni með 37 stig eftir 14 leiki, höfum skorað 39 mörk en fengið á okkur aðeins 11 mörk (Nettó +28).

Í 32-liða úrslitum bikarsins unnum við sigur á IFC Carl á Leiknisvelli, 0 – 3. Svo fórum við til Eyja og lékum við heimamenn í ÍBV. Þar náðum við naumum 2 – 3 sigri eftir framlengingu, sigurmarkið skoraði „Norska hangikjötið“ Alexander Toft Söderlund, eins og blaðamaður MBL orðaði það.

FH-vélin hikstaði aðeins þegar liðið tapaði, 4-0, í Kaplakrika gegn FC Aktobe frá Kasakstan. Þar á eftir kom leikur gegn Keflvíkingum á heimavelli, kaflaskiptur leikur sem endaði 2 – 2.  Svo fóru okkar menn til Kasakstan og töpuðu 2 – 0. Vélin komst svo aftur í gang (vonandi) með 2 – 1 heimasigri á Breiðabliki.

Þeir Ásgeir Gunnar, Pétur Viðars, Hjörtur Logi, Freyr Bjarna og Gummi Sævars eru allir fjarverandi (að ég best veit...) en þeir Atli Viðar og Dennis Siim komu báðir inn á gegn Blikum og litu vel út. Vonandi að þeir verði með á morgun en það er ég því miður ekki með á hreinu.

Hugsanlegt byrjunarlið:

                                Daði
Guðni Páll – Sverrir – Tommy – Björn Daníel
  Matthías V – Davíð Þór – Tryggvi Guð.  

  Ólafur P. – Atli Viðar – Atli G.
 Við hvetjum alla FH-inga til að mæta eftir dræma mætingu á leikinn gegn Breiðabliki. Nú er um að gera að taka þátt og styðja okkar lið til sigurs í Keflavík!

Árni Freyr Helgason
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson