FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Brynjar Ásgeir: Leikurinn leggst vel í okkur
Anton Ingi Leifsson    Mið, 29. júlí 2009   
Brynjar Ásgeir

Brynjar Ásgeir

Brynjar Ásgeir

2.flokkur FH leikur í kvöld einn sinn mikilvægasta leik til þessa. Við fengum því landsliðsmann okkar FH-inga, Brynjar Ásgeir Guðmundsson, sem er lykilmaður í þessu liði til að svara nokkrum laufléttum spurningum. Við skulum vinda okkur í þetta.


Fréttamaður: Sæll Binni .. Hvernig leggst leikurinn í kvöld í ykkur?
Binni:  Sælir.. heyrðu hann leggst vel í okkur enda við búnir að vera á góðu skriði í sumar og vonandi höldum við áfram á sömu braut í kvöld

Fréttamaður:  Nú eru þið komnir 10 stigum á eftir KR. Helduru að þið getið unnið þessa deild?
Binni:  Eftir leikinn í kvöld verða þetta bara 7 stig vonandi, og næsti leikur á eftir því er einmitt gegn KR-ingum svo vonandi við getum nartað í hælana á þeim út mótið og stolið þessu í lokin síðan..

Fréttamaður: Þið gerðuð jafntefli í fyrri leiknum gegn Fylki 1-1. Það voru ósanngjörn úrslit ekki satt ?
Binni: Það var reyndar bara klaufaskapur af okkur hálfu að klára þann leik ekki, við skorum mark um miðjan seinni hálfleik og í staðinn fyrir að halda áfram að sækja á þá dettum við niður og þeir skora svo ódýrt mark í blálokin, klárlega ekki sanngjarnt en við getum engu að síður kennt sjálfum okkur um.

Fréttamaður: Nú ert þú kominn með nr í meistaraflokki. Helduru að þú fáir tækifæri þar sem eftir lifir sumrinu ?
Binni: Já það væri auðvitað frábært, en það er bara mikilvægt að halda áfram að standa sig vel með 2. flokknum og sjá svo hvað gerist : )


Líklegt byrjunarlið:

                   Arnar

Binni - Haffi - Árni Björn - Össi Magg

      Hákon  - Gunnar Oddgeir

 Gunnar Páll - Viktor S. - Aron Freyr

                 Binni Ben 

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson