|
3. Flokkur FH vann ReyCup |
|
Guðlaugur Valgeirsson
Sun, 26. júlí 2009 |
|
|
3. Flokkur FH vann í dag ReyCup eftir sigur á Fylki í Vító 4-3, leikið var á þjóðarleikvangi okkar Íslendinga, Laugardalsvellinum. Leikurinn var mjög jafn og var markalaust í hálfleik. En snemma í seinni hálfleik komust FH yfir, þeir fengu aukaspyrnu sem fyrirliðinn Einar Karl Ingvarsson tók, beint á kollinn á Emil Atlason sem stangaði tuðruna inn og staðan 1-0. Eftir þetta voru Fylkir ívið sterkari og uppskáru loksins mark á 47 mínútu eða 3 mín fyrir lok leiksins, en leikirnir á ReyCup eru bara 2 x 25 mín. Þannig að staðan var 1-1 og liðin fóru í vítaspyrnukeppni.
Fylkir byrjuðu en markvörður FH, Kristján Þórarinsson sem er nú 95' módel og er því að spila 2 ár upp fyrir sig varði frá Fylkismanninum, síðan tók Emil Atla fyrir FH og skoraði örugglega, Fylkir skoruðu síðan úr sinni annarri, Einar Karl fyrirliði skoraði að sjálfsögðu. 3 fylkisvítið var líka mark og þá var komið að seinasta vítinu, mark og FH vann en annars bráðabani, Aron Lloyd Green steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Skemmst er frá því að segja að fyrirliði 3 flokksins á Íslandsmótinu, Bjarki Már Benediktsson var ekki með á mótinu, útaf því hann var að undirbúa ferð til Noregs með undir 17 ára landsliði Íslands. Óskum þjálförunum Orra Þórðarsyni og Jóni Páli Pálmasyni til hamingju með árangurinn og einnig strákunum.
ÁFRAM FH!! |