
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Nokkur orð um nýju síðuna | |
|
|
Það er ekki annað hægt að segja en að það sé mikill léttir að nýja útlit FHingar.net sé komið í loftið en nú er rúmlega mánuður síðan að ég og Steinþór tókum opinberlega við vefnum. Steinþór fór strax sama dag og við tókum við, að hanna nýtt útlit á vefinn. Steinþór nýtti allan sinn frítíma í síðuna og það var eiginlega sama hvaða hugmynd maður kom með þá var hann strax farin í málið. Eiins og hann segir sjálfur "Það er allt hægt", þegar hugmyndin með Radio FH kom þá sagði hann "Það er ekkert mál" Það hefur verið algjör heiður að fylgjast með honum byggja þennan vef. Þegar þetta er skrifað þá er Steinþór ásamt konu sinni á fæðingardeildinni og er von á nýjum FHing núna í nótt. Það sem ótrúlegra er að hún átti að eiga á sunnudaginn fyrir viku síðan og aðeins nokkrum mínútum eftir að síðan fór í loftið í gærkvöldi fór allt af stað. Greinilegt að nýjasti FHingurinn var að bíða eftir að pabbi sinn myndi koma síðunni í loftið. Ari sagði á spjallinu í gær að við værum Gott Team og ég held að það sé alveg hárrétt hjá honum. Anton, Árni Rúnar og Gussi hafa bæst í hópinn og er ég sannfærður að þarna sé einvalalið á ferðinni. Viðar Hrafn fær að sjálfögðu eilífðaraðgang að síðunni. Leikmannasíður: Rétt að nefna það að leikmannasíðurnar eru ekki alveg tilbúnar. Við eigum eftir að gera ítarlegt profile um hvern einasta leikmann og einnig á eftir að gera síður fyrir yngri leikmenn í liðinu. Spjall: Það hefur ekki verið hægt að nýskrá sig á spjallið í fjölda ára og var það í algjöru hakki eins og Steinþór orðaði það. Það var búið að hakka það í gegn af Spam botum en það hefur nú verið lagað. VIÐ HVETJUM ALLA TIL AÐ SKRÁ SIG á spjallið. Þetta er svona það helsta og við vonum að þið séuð ánægð með nýja útlitið. ÁFRAM FH!
|