FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

og rennum yfir söguna ......
Viðar Hrafn Steingrímsson    Sun, 19. júlí 2009   

Ýmir bað mig að skrifa einhvern smá pistil í tilefni þess að ný útgáfa af stuðningsmannavefnum fhingar.net var að "fara í loftið". Það lá beinast við að taka saman smávegis texta um tilurð og sögu vefsins.

Upphafið að stofnun stuðningsmannavefs FH kom líkast til upp úr einhverju nördalegu tölvunámskeiði sem undirritaður fór á 2002. Lokaverkefnið var að setja saman einhvern þematengdan vef. Góðvinur minn, Númi Arnarson, var í svipuðum pælingum. Sjálfur lá ég í stuðningsmannasíðum míns liðs á Englandi (stórliðsins Coventry City) og fannst vanta slíkan miðil fyrir FH. Opinber heimasíða félagsins var allra góðra gjalda verð (reyndar hafði FH misst af léninu fh.is í hendur Fiskiðjusamlags Húsavíkur og þurfti að heita fhingar.is) en það vantaði vef sem fjallaði um liðið á annan hátt og væri óbundinn af félaginu. Það varð úr í upphafi árs 2003 að við Númi settumst við að útbúa vef frá grunni, miklu meira af vilja en mætti, og skrifuðum allan kóða í höndunum. Úr varð trúlega ljótasti vefur í sögu íþrótta, svona eftir á að hyggja. En mikið vorum við samt stoltir af honum. Það var ævintýraleg vinna að útbúa vefinn og töluvert maus að skrifa hverja og eina frétt. Fyrsta færsla var umfjöllun um leik FH og Víkings í deildarbikarnum.

Liðið var ansi ólíkt því sem nú er eins og má sjá HÉR þó nokkrir meistarar séu enn að spila með FH. FH tapaði leiknum 1-2 en það sem sveið sárast var að tapa fyrir lærisveinum Sigga Jóns sem hafði verið rekinn frá FH eftir tímabilið 2002. Ólafur Jóhannesson stýrði liði FH sem endaði sinn riðil í deildarbikarnum á botninum og útlitið ekki bjart. Liðinu var spáð falli en í fyrsta viðtalinu sem this.is/fh tók, efuðust tveir nýir leikmenn FH um þá spádóma. Það voru þeir Allan Borgvardt og Tommy Nielsen sem voru sannarlega himnasending fyrir FH sem var spútniklið ársins og kórónaði skemmtilegt tímabil með að niðurlægja nýbakaða Íslandsmeistara KR í Kaplakrika í lokaleik sumarsins 7-0.

Við Númi þóttumst aldrei vera fróðari um fótbolta en aðrir og því var það kærkomið þegar Lúðvík Arnarson bauðst til að sjá um einkunnagjöf eftir leiki. Ég held að það megi segja að það hafi verið einn vinsælasti liður á fhingar.net fyrr og síðar. Því var þó sjálfhætt þegar Lúðvík tók sæti í stjórn knattspyrnudeildar við fráfall Þóris Jónssonar. Það væri nýjum vef áreiðanlega til framdráttar ef fæst maður með yfirsýn á borð við Lúðvíks til að gefa einkunnir sem menn geta verið sammála um að vera ósammála um.

Reksturinn á this.is/fh var smár í sniðum, auglýsing frá fyrirtæki tengdaföður míns borgaði hýsinguna og ég held að það megi segja að sá andi hafi alltaf svifið yfir vötnum á stuðningsmannavefnum - að hafa upp í kostnað en að láta það duga. Það var aldrei meiningin að græða á vefnum. Árið eftir hafði Hafliði Breiðfjörð, ritstjóri á Fótbolti.net samband og bauðst til að láta fyrirtæki sem honum tengdist hanna nýtt útlit og fréttakerfi fyrir okkur. Þá var skipt um nafn og núverandi nafn tekið upp sem og það útlit sem hefur í grófum dráttum fylgt vefnum fram til dagsins í dag. Þá þurfti að safna auglýsingum og það varð til þess að örlítið var til í sjóði í ágúst 2004. Það dugði til að koma okkur félögunum til Skotlands, nánar tiltekið Perth að sjá FH og Dunfermline AFC eigast við í magnaðasta íþróttaviðburði sem undirritaður hefur verið viðstaddur.

Það má glöggt heyra þögn slá á 7500 áhorfendur og örfáa FH-inga ærast á vídeómyndum sem Sigmundur Pétur Ástþórsson tók af lykilmómentum í leiknum. Kíki alltaf öðru hverju á þessar myndir og kemst í gott skap.

Eins og áður var nefnt var einkunnagjöf Lúðvíks einn vinsælasti liðurinn á fhingar.net. Aðrir vinsælir liðir hafa verið upphitun sem var gjarnan frekar vegleg með viðtölum við stuðningsmenn andstæðingana. Skóhillan er einnig liður sem mætti endurvekja (og stendur víst til) en Björn Jónsson, sem var sá fyrsti sem var fenginn til að rifja upp brot af ferlinum, á heiðurinn að nafninu. FH-ingurinn var einnig ágæt hugmynd og það var áhugavert að sjá All time FH lið stuðningsmannanna. Meiningin var ekki að upphefja einstaklinga, né heldur stuðningsmenn sem heild, heldur heyra í hinum almenna áhanganda.

Árið 2005 fluttist Númi austur á land að fræða þaulreynda trukkabílstjóra um hversu hættuleg farartæki þeirra eru. Atli Rafnsson kom inn í starfið sem seinna tók við stjórnartaumum. Þegar líða tók á fann ég að ég hafði ég ekki eins mikinn áhuga á starfinu og áður. Ég upplifði líka að sumir teldu það heilagan rétt sinn að fá fréttir af Fimleikafélaginu, jafnvel þó ekkert væri að frétta. Ég ákvað því að það væri réttast að draga mig í hlé og leyfa öðrum að komast að.

Í dag eru þeir Ýmir og Steinþór teknir við vefnum með einvala lið með sér. Ég hef aðeins fengið að fylgjast með hönnun nýs vefs og verð að segja að þeir félagar hafa sett nýtt viðmið á sviði stuðningsmannavefja. Það er viðeigandi eins og siglingin er á FH á vellinum að vefurinn sé sá al flottasti á landinu. Þessir höfðingjar hafa líka alltaf haft það að markmiði að hugsa fyrst um hvað þeir geta gert fyrir FH en ekki öfugt. Þeir hafa haft vit á því að fá nógan mannskap með sér enda þarf það ef halda á utan um alla liði og vinna þá sæmilega. Ég vil enda á að óska þeim, sem og öllum FH-ingum til hamingju með þennan frábæra vef.

 Áfram FH!

 Viðar Hrafn Steingrímsson

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson