FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Umfjöllun: Dramatík í Krikanum
fhingar@fhingar.net    Lau, 18. júlí 2009   
FH og Keflavík mættust í dag í flottu veðri á Kaplakrikavelli. Fyrir leik voru FH með 33 stig í fyrsta sæti á meðan Keflavík voru í 5 sæti með 19 stig. Með sigri í dag næðu FH-ingar 15 stiga forskoti í allavega einn sólarhring.

Það fyrsta markverða sem gerðist í leiknum kom á 3 mínútu þegar Matthías Vilhjálmsson fékk boltann á kantinum, gaf fyrir og Björn Daníel Sverrisson skallaði rétt yfir mark Keflvíkinga. Á 5 mínútu átti Atli Guðnason skot rétt framhjá, hann fékk boltann eftir sendingu frá Alexander Söderlund sem fékk boltann inn fyrir vörn Keflvíkinga. Strax í næstu sókn átti Davíð Þór Viðarsson skot framhjá. Á 12 mínútu fengu FH-ingar aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Keflvíkinga, Matthías Vilhjálmsson kom með fastan bolta fyrir og Davíð Þór Viðarsson skallaði boltann framhjá.

Það munaði litlu á 14 mínútu, Tryggvi Guðmunds með hornspyrnu, Davíð Þór skallaði hann áfram, þar sem Atli Guðna náði góðum skalla á Lasse í markinu. Tryggvi með aðra hornspyrnu á 22 mínútu, á nærstöngina þar sem Tommy Nielsen skallaði boltann rétt yfir slánna. Á 23 mínútu voru FH óheppnir, Viktor Örn keyrði upp vinstri kantinn, gaf boltann fyrir og Alex Söderlund kom skoti á markið í einn Keflvíking en Lasse náði að verja vel. Fyrsta færi Keflvíkinga kom á 24 mínútu þegar þeir fengu aukaspyrnu utan af kanti, Símun Samuelsen sendi hann fyrir en beint í fangið á Daða.

FH náði ekki að brjóta ísinn á 25 mínútu, Tryggvi með enn eina hornspyrnuna, lár bolti á nærstöngina, Söderlund stangar boltann með flugskalla, hárfínt framhjá stönginni. Stórsókn hjá Keflavík á 36 mínútu sem endaði með því að einn leikmaður Keflavíkur skaut rétt yfir. Keflavík komust yfir á 41 mínútu, gegn gangi leiksins. Þeir fengu aukaspyrnu, 25 metra frá marki FH, Haukur Ingi tók hana inn í teiginn þar sem Guðjón Árni Antoníusson kom og stangaði boltann inn, 0-1 fyrir gestina. Gestirnir leiddu í hálfleik, gegn gangi leiksins, FH áttu að vera búnir að skora nokkur mörk en Keflavík náðu að vinna sig inn í leikinn seinasta korterið.

Seinni Hálfleikur

Fyrsta færið í seinni hálfleiknum fengu FH-ingar, Matthías Guðmundsson fékk sendingu inn fyrir vörn Keflvíkinga, var kominn inn í teiginn og átti skot en beint á Lasse, hann náði boltanum aftur en línuvörðurinn dæmdi brot á Matthías. Á 58 mínútu jöfnuðu FH-ingar, verðskuldað miðað við gang leiksins, Tryggvi tók enn eina aukaspyrnuna og Davíð Þór Viðarsson skallaði boltann í fjærhornið, 1-1. á 63 mínútu fengu FH gott færi, Björn Daníel og Matthías Guðmundsson spiluðu vel saman áður en Matti kom með sendingu á Tryggva sem skallaði boltann en Lasse varði vel.

Á 71 mínútu voru FH óheppnir, Matthías Guðmundsson fékk boltann á kantinum, gaf fyrir þar sem Atli Guðna stökk yfir Guðjón Árna og skallaði í skeytina. Lasse bjargaði Keflavík á 72 mínútu, Björn Daníel átti gott skot rétt fyrir utan teiginn, sem stefndi í hornið en Lasse varði frábærlega í horn. FH komust yfir á 75 mínútu, enn og aftur kom Tryggvi með magnaða hornspyrnu og nú var það Atli Guðnason sem skallaði í mark Keflavíkur, Lasse átti ekki séns, hornspyrnur Tryggva í leiknum voru búnar að vera frábærarar og ávallt stafaði ógn af þeim.

FH fengu víti á 85 mínútu, Atli Guðna tók hornspyrnu sem fór yfir alla nema Matthías Guðmundsson, Einar Orri sem var nýkominn inná sparkaði hann niður, Matthías Vilhjálmsson tók vítið en það var arfaslakt og beint á markið og Lasse varði það auðveldlega og staðan því enn 2-1. Keflavík jöfnuðu á 89 mínútu þegar þeir keyrðu í gegnum allan völlinn, FH-ingar voru bara áhorfendur, frábær sókn hjá Keflavík sem lauk með því að Magnús Þorsteinsson jafnaði. Niðurstaða leiksins jafntefli, FH hljóta að vera svekktir, sóttu meira í leiknum en Keflavík voru skynsamir, vörðust vel og með flottar skyndisóknir.


Byrjunarlið FH: Daði Lárusson 7, Matthías Vilhjálmsson 6, Sverrir Garðarsson 6, Tommy Nielsen 6, Viktor Örn Guðmundsson 7, Davíð Þór Viðarsson 8, Tryggvi Guðmundsson 8(Hákon Atli Hallfreðsson 78'), Björn Daníel Sverrisson 7, Matthías Guðmundsson 7, Alexander Töft Söderlund 6, Atli Guðnason 8.

Byrjunarlið Keflavík: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Alen Sutej, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Nicolai Jörgensen, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Brynjar Örn Guðmundsson (Jóhann B. Guðmundsson 60'), Jón Gunnar Eysteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson (Einar Orri Einarsson 84'), Símun Eiler Samuelsen, Haukur Ingi Guðnason (Magnús Þórir Matthíasson 54').

Dómári: Jóhannes Valgeirsson - 5 af 10 mögulegum, solid en nokkur mistök
Áhorfendur: 1076
Maður leiksins: Tryggvi Guðmundsson
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

   
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson