FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Pistill Lúðvíks Arnarsonar
fhingar@fhingar.net    Þri, 08. apríl 2003   
Nú þegar farið er að vora svo um munar, er ekki úr vegi að velta fyrir sér knattspyrnusumrinu sem framundan er. Reyndar hafa fjölmiðlar þegar hafið umfjöllun sína um liðin sem spila í Landsbankadeildinni í sumar. Það er því við hæfi að skoða okkar ástkæra FH lið, líta á það út frá breytingum á mannskap og þjálfara frá því í fyrra og velta fyrir sér hvaða möguleikar eru á góðum árangri og síðast en ekki síst að velta fyrir sér hvað telst viðunnandi árangur.

Í ár í fyrsta skipti í fjöldamörg ár kem ég ekkert að málum hjá FH í sumar og mun því eflaust skoða gengi liðsins frá öðru sjónarhorni en oft áður. Engu að síður þekki ég vel til þar á bæ og er í ágætis sambandi við bæði leikmenn og þjálfara. Ég verð þó að ítreka að allt sem hér er skrifað er eingöngu mín skoðun og þarf ekki að vera skoðun stjórnenda heimasíðunnar né neinna þeirra sem tengjast liðinu með beinum eða óbeinum hætti. Þetta er skrifað til gamans og er það von mín að einhver hafi gaman af.


Árangur FH undanfarin ár hefur verið með ágætum, eftir 5 mögur ár varð ákveðin breyting á félaginu við komu Loga Ólafssonar. Hann fékk til sín sterka leikmenn án þess að henda burtu þeim kjarna sem barist hafði í bökkum í 1.deildinni árin á undan og bjó til lið sem sigraði með yfirburðum í 1. deild árið 2000 og var eingöngu hársbreidd frá því að komast í úrslit bikarkeppninnar. Árið eftir varð liðið svo í þriðja sæti og aftur komumst við í undanúrslit bikarsins þó sá leikur hafi farið mjög illa. Síðan tók Sigurður Jónsson við því góða búi sem Logi hafði komið á og framan af gekk liðinu vel, sigraði í Deildarbikarnum og náði viðunnandi árangri í Intertoto keppninni. Árangur liðsins í deild og bikar var þó ekki í samræmi við væntingar flestra fyrir tímabilið. Fyrir vikið var samningur við Sigurð ekki endurnýjaður og hafist var handa við að koma liðinu aftur í fremstu röð. Með þjálfarabreytingunni má ljóst vera að árangur liðsins í fyrra þótti ekki viðunnandi og má segja að þar hafi verið gefinn tónninn í því að forystumenn félagsins telja að FH eigi að vera í efri hluta deildarinnar frekar en í fallbaráttu fram á síðasta dag. Er ég viss um að það samræmist metnaði flestra sem að starfinu koma sem og stuðningsmanna liðsins.







Óli Jó

Óli Jó


Óli Jó

Nú er það svo að endalaust má deila um það hvort skipt hafi átt um þjálfara en í ljósi ýmissra atburða sem ég ætla ekki að rekja hér var það óumflýjanlegt að mínu mati. Sigurður var ekki líklegur til að ná meira út úr þessu liði og því augljóst fyrir mér að skipta þurfti um þjálfara. Ráðning Óla Jó vakti misjafnar tilfinningar hjá mörgum félagsmönnum og ljóst var að stuðningsmenn voru ekki á einu máli um þá ráðningu. Enn sem komið er liggur ekki fyrir hvort sú ákvörðun var rétt eða röng en leyfi ég mér á þessum tímapunkti að halda því fram að þetta hafi verið rétt ákvörðun og vænti ég mikils af liðinu í sumar. Við höfum misst leikmenn frá því í fyrra á borð við Hilmar Björnsson sem var lykilmaður og fyrirliði liðsins, þá hefur Jóhann Möller haldið á brott vegna ónógra tækifæra að eigin mati. Þá fór Benedikt Árnason í Stjörnuna í þeirri von um að komast í leikæfingu eftir löng og erfið meiðsli. Ég skil vel þessa þrjá menn, Hilmar borinn og barnfæddur KR ingur og hafði mikin hug á að vinna Íslandsmótið með sínu félagi fyrst tækifæri gafst til. Jóhann, góður drengur, var að mínu mati ekki nógu góður til að leiða framlínu FH liðsins og því kom það ekki á óvart að hann vildi reyna sig annars staðar og ástæða Benedikts er góð og gild tel ég, að því gefnu að hann komi aftur nái hann sér af umræddum meiðslum.







Sverrir Garðarsson

Sverrir Garðarsson


Sverrir Garðarsson

Í staðinn höfum við fengið Sverri Garðarson að láni frá Molde, strákur sem er uppalinn í FH og að mínu mati mjög efnilegur varnarmaður sem hefur margt til brunns að bera. Tvo danska leikmenn sem gott orð fer af en ég hef ekki séð spila svo ég verð hér að byggja á orðum annarra. Ef Tommy er jafngóður og menn vilja meina og getur stjórnað vörninni þá er það kostur sem að mínu viti hefur vantað í liðið undanfarin 3 ár. Ef Allan er jafngóður og mér er sagt þá mun hann styrkja sóknarleik liðsins verulega. Þá höfum við fengið aðra sendingu frá Dalvík, ungan og efnilegan vinstrifótarmann að nafni Hermann. Hann virkar á mig sem mjög traustur leikmaður en er spurningarmerki í dag fyrir mótið. Hann er í leikbanni í fyrstu tveimur leikjunum og á því eftir að koma í ljós hvort honum tekst að vinna sér sæti í liðinu, fer það væntanlega eftir gengi liðsins í upphafi.
Að öðru leyti erum við með óbreyttan leikmannahóp frá því í fyrra. Ég tel að við séum betur mannaðir í ár en í fyrra að gefnum ákveðnum forsendum með útlendu leikmennina og því ekki úr vegi að gera ákveðnar kröfur til liðsins. Gengi þess á útmánuðum hefur hins vegar verið hroðalegt og ekki skrýtið út frá því að liðinu sé spáð ýmist falli eða fallbaráttu af sérfræðingum fjölmiðlanna. Þetta getur hins vegar verið kostur, það er að vætingarnar séu litlar, þá líður mönnum oft eins og þeir hafi allt að vinna og líkt og sást í fyrra er ekki endilega tenging milli vorleikja og sumarsins. Ég ætla þó ekki að halda því fram að betra sé að geta lítið sem ekkert yfir veturinn, það er hræsni og tæki ég deildarbikarmeistaratitli hvenær sem er handa FH liðinu enda hlýtur markmiðið alltaf vera að standa sig vel. Hins vegar hefur lið FH í vor verið skipuð töluvert öðruvísi en ég geri ráð fyrir að verði skipað í fyrsta leik móts og tilkoma danana tveggja, Baldurs Bett sem verið hefur í Skotlandi í vetur og leikmanna á borð við Frey sem verið hefur meiddur undanfarna 3 mánuði, mun breyta getu liðsins. Það er þó ekki sjálfgefið en ég held að það verði sterkara og í raun verður það að vera sterkara ef ekki á illa að fara.
Eins tel ég að ungir leikmenn í liðinu á borð við Víði Leifs, Svavar Sigurðsson, Emil Hallfreðs og Sigmund Ástþórsson geti bara hafa bætt sig í vetur enda fengið að spila töluvert með liðinu. Þessir strákar verða kannski ekki lykilmenn í liðinu í sumar en vonandi fá þeir tækifæri og fara að láta til sín taka. Þessir strákar eru búnir að vera mjög efnilegir lengi og nú þurfum við á því að halda að þeir taki næsta skref, verðir góðir en það er þó hægara sagt en gert. Ég þekki þessa stráka vel enda hef ég þjálfað þá í mörg ár, síðast í fyrra. Þeir hafa marga góða kosti en nú er komið að því að þeir skili sjálfir þessu "extra" sem til þarf til að vera úrvaldsdeildarleikmaður. Enginn þeirra hefur náð því ennþá en þeir eru ungir að árum og eiga alla möguleika á að verða frambærilegir leikmenn.







Heimir Guðjónsson

Heimir Guðjónsson


Heimir Guðjónsson

Lykilmenn frá fyrri árum eru svo Baldur Bett, Ásgeir Ásgeirsson, Heimir Guðjónsson, Daði Lárusson, Jón Þorgrímur, Jónas Grani, Freyr Bjarnason og Atli Viðar Björnsson. Á þessum mönnum kemur mikið til að mæða og má það vera ljóst að þeir spiluðu allir undir væntingum í fyrra nema hugsanlega Baldur Bett. Þessir menn eiga að vera í lykilhlutverki og ljóst að ef liðið á að ná góðum árangri þá þarf meginþorri þeirra að spila vel í sumar. Sérstaklega mæðir mikið á Heimi Guðjónssyni sem nú er orðin fyrirliði liðsins. Hann hefur allt til brunns að bera og þarf ekki að kynna, hann þarf að ná að stjórna spili liðsins. Hann er komin af léttasta skeiði en reynsla hans og útsjónarsemi er slík að hann á að vera einn allra besti miðjumaður deildarinnar. Atli Viðar er núna búinn að ná sér af erfiðum hnémeiðslum og þarf að skora mörk í sumar, að mínu mati á hann að vera 10-12 marka maður og allt annað er óásættanlegt að mínu mati. Daði þarf að halda "búrinu" í góðu lagi og á nú með alla sína reynslu að vera lykilmaður í liðinu.
Ef Óli og nýráðinn aðstoðarþjálfari Leifur Garðarsson ná því besta út úr sínum mönnum sé ég ekki annað en að þetta lið eigi að geta verið meðal 5 efstu í lok sumars. Liðið er þó brotthætt og kannski það óútreiknanlegasta í deildinni. Það mæðir því mikið á mönnum í upphafi móts að ná hagstæðum úrslitum til að fá aftur það sjálfstraust sem einkenndi liðið undir stjórn Loga Ólafssonar. Ef það tekst getur allt gerst, ef byrjunin verður slök þá getur þetta orðið langt og erfitt sumar hjá okkar mönnum

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson