FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Tommy og Allan skrifa undir
fhingar@fhingar.net    Mán, 31. mars 2003   
AGF leikmennirnir Tommy Nielsen og Allan Borgvardt gerðu munnlegan samning í dag við FH og munu spila með liðinu í sumar. AGF leikmennirnir Tommy Nielsen og Allan Borgvardt gerðu munnlegan samning í dag við FH og munu spila með liðinu í sumar.

Á heimasíðunni AGF Support Copenhagen má lesa að Tommy Nielsen sé á leið frá AGF en ekkert um að hann fari til FH - hann segist ekki viss um að félagið hafi nokkurn áhuga á sér. Hann hefur aðeins spilað 20 mínútur með AGF á tímabilinu, aðallega vegna meiðsla í nára. Hann segist jafnvel búast við því að sækja um í lögregluskólanum ef ekkert gerist á næstunni í fótboltamálum. Tommy hefur leikið 56 leiki fyrir AGF og skorað 3 mörk en áður hefur hann leikið með Aarhus Fremad, Næstved Boldklub og Sorø Freja. Flestir netmiðlar telja hann vinstri bakvörð en á opinberu heimasíðu AGF er hann titlaður miðjumaður.
Sjá fréttina - umfjöllun um Tommy af sömu síðu.

Allan er af flestum miðlum lýst sem afar fljótum og teknískum leikmanni sem nýtist best sem vængmaður. Hann var gjarnan markahæstur í yngri flokkum AGF en hefur skorað 5 mörk í 64 leikjum fyrir AGF. Fyrri félög eru Bramming B og Esbjerg fB.

Þeir félagar voru spurðir á heimasíðu AGF 10. mars hvernig þeim litist á að fara til Íslands að spila. Allan sagði að hann hefði ekki ákveðið neitt 100% um það hvort þetta er eitthvað sem hann hefði áhuga á. En það getur ekki skaðað að líta á hvað þeir hafa að bjóða þarna. Tommy sagðist gjarnan vilja upplifa eitthvað nýtt og spila fótbolta í leiðinni. Framkvæmdastjóri AGF, Frank Heskjær, sagði að þetta gæti komið leikmönnunum til góða því ekki væri útlit fyrir annað en þeir myndu verma bekkinn í vor.
Sjá fréttina - umfjöllun um Allan af ofangreindri síðu

Á einni af þeim síðum sem ég rakst á þegar ég var að leita að upplýsingum um þá félaga stóð að það væri mjög gott að kaupa Allan í CM - getur einhver staðfest þetta?

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson