
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Ágóðaleikur í kvöld | |
|
|
Ágóðaleikur í kvöld í Kaplakrika
Þar sem það kostar töluvert að fá nýja leikmenn til liðs við félagið og til að standa straum af kostnaði vegna æfingaferðar til Portúgals verður haldinn ágóðaleikur í kvöld í Kaplakrika. Því miður berst fréttin fremur seint og því mun aðeins kosta 500 kr. inn. Leikurinn hefst klukkan 18:30. Liðin sem mætast verða FH lið dagsins í dag ásamt Allan Borgvardt og Tommy Nielsen gegn gömlu kempunum sem eru skipaðar svona: Markvörður : Friðrik Jónsson Varnarmenn : Viðar Halldórsson, Björn Jónsson, Andri Marteinsson og Arnar Björnsson íþróttafréttamaður Miðjumenn : Janus Guðlaugsson, Logi Ólafsson, Guðmundur Árni Stefánsson og Ólafur Jóhannesson Sóknarmenn : Hörður Magnússon og Jón Erling Ragnarsson Eins og þetta sé ekki nóg þá ætlar Botnleðja að spila í hálfleik og heyrst hefur að Björgvin Halldórsson muni stíga á stokk með þeim og flytja eitt lag. Allir eru hvattir til að mæta og leggja góðu málefni lið. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá gömlu stjörnurnar okkar í aksjón. |