FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Herrakvöld FH
fhingar@fhingar.net    Lau, 05. apríl 2003   
Umfjöllun um herrakvöld FH Herrakvöld FH fór fram í gærkvöldi í Hraunholti. Það sem einkenndi kvöldið var mikil samheldni og einnig sú staðreynd að ræðumaður hélst í húsinu þangað til röðin kom að honum. Logi Ólafsson fór á kostum í hlutverki veislustjóra, reytti af sér brandara og skaut föstum skotum hægri vinstri. Auk þess fór hann með kviðlinga þegar það átti við.
Ellert B. Schram

Ellert B. Schram

Ellert B. Schram aðalræðumaður kvöldsins var ekki í öfundsverðu hlutverki að feta í fótspor Loga en komst þó þokkalega frá sinni ræðu sem mestmegnis fjallaði um konur í bílskúrum Hafnarfjarðar (sönn saga).


Jóhannes Kristjánsson

Jóhannes Kristjánsson

Jóhannes "eftirherma" Kristjánsson fylgdi í kjölfarið og datt inn og út úr hlutverkum hinna ýmsu stjórnmálamanna sem búa innra með honum. Ekki var laust við að kviðslit og magakrampi hafi verið farinn að gera vart við sig hjá sumum þegar hann hafði lokið máli sínu.


Björgvin Halldórsson

Björgvin Halldórsson

Björgvin Halldórsson sýndi og sannaði að hann er okkar íslenski Elvis Presley. Uppboð var á lögunum sem hann söng og okkur telst til að safnast hafi 135.000 kr. þegar boðin voru upp lögin, Spáðu í mig, Gullvagninn og Elvislag að eigin vali. Glæsilegt framtak.


Maturinn var gríðarlega góður í alla staði. Boðið var upp á lamb og svín auk tilheyrandi meðlætis. Forrétturinn var sjávarréttasúpa og á eftir var kaffi, konfekt og koníak.


Lokapunktur dagsskrárinnar var svo happdrætti með ágætis vinningum en reyndar verður að segjast að áhugi manna hafi verið frekar lítill fyrir drættinum.


Aðgöngumiðar giltu einnig sem miðar á fjörukrána og lýkur þar og hér með fréttaflutningi this.is/fh af þessu frábæra kvöldi.


 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson