FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Canela Cup
fhingar@fhingar.net    Mið, 09. apríl 2003   
FH-KR á Canela Cup Víðir Leifsson sendi okkur rétt í þessu línu frá Portúgal þar sem hann fjallar um leikinn gegn KR.

Byrjunarliðið var þannig skipað að Daði var í marki og Svavar og Hermann bakverðir en miðverðir voru Ásgeir og Tommy Nielsen. Óli stillti upp þremur miðjumönnum, þeim Heimi, Baldri Bett og svo var Allan fyrir framan þá. Frammi voru Jónsi, Atli og téður Víðir.

Víðir staðfesti það að FH hefði verið sterkara liðið í leiknum og átti fleiri færi og var m.a. mark dæmt af þeim í fyrri hálfleik sem Atli skoraði ,,en eins og oft áður eru íslenskir línuverðir ekki á okkar bandi."

Það var svo Atli sem skoraði mark FH en ekki Allan eins og við höfðum greint frá áður. Calum Bett kom inn á sem varamaður sem og þeir Gummi Sævars, Maggi og Grani.

Víðir valdi Allan mann leiksins en tók fram að Heimir, Tommy og Jónsi hefðu staðið sig mjög vel sem og Gummi og Grani þegar þeir komu inn á.

Daníel Einars og Simmi spiluðu svo með úrvalsliði Úrvals Útsýnar gegn Grindavík og lét Simmi hafa eftir sér að þeir hafi verið mun betri þrátt fyrir að hafa tapað 3:1. Úrvalsliðið er lið skipað þeim leikmönnum sem ekki spila mikið með eigin liðum.

FH liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir leik við fyrrnefnt úrvalslið en sá leikur verður háður í dag klukkan 14:45.

Við kunnum Víði bestu þakkir fyrir upplýsingarnar en hann lofaði að láta aftur heyra í sér í kvöld til að leyfa okkur að heyra um leikinn við ÚÚÚ. Við uppfærum um leið og okkur berast fréttir.
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson