FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Canela Cup
fhingar@fhingar.net    Mið, 09. apríl 2003   
FH - ÚÚÚ. FH vinnur sinn fyrsta sigur síðan í janúar Loksins loksins. Það þurfti reyndar vítaspyrnukeppni til og lið sem var skipað leikmönnum sem hin liðin vilja ekki (nei þetta var ljótt - dreg það til baka)

Óli stillti upp í 442 með Daða í marki (þarf nokkuð lengur að taka það fram?), Gumma í hægri bakvarðarstöðu og Magga í þeirri vinstri. Ásgeir og Tommy héldu sínum stöðum sem miðverðir.
Miðjan var svona skipuð (hægri til vinstri) - Jónsi, Heimir, Baldur og Hermann. Frammi voru svo Allan og Atli.

Það er ekki alveg ljóst hvort okkar maður á Canela Cup, Víðir Leifsson, er sár eða segir satt og rétt frá þegar hann segir að leikur FH hafi verið skelfilegur í fyrri hálfleik og enn verri í þeim seinni. Ég kýs nú samt að trúa honum. Hann segir að Ásgeir og Heimir hafi verið skárstir og Allan hafi átt nokkrar rispur og m.a. skapað færið sem Atli skoraði úr eina mark FH í venjulegum leiktíma. ÚÚÚ jafnaði í seinni hálfleik með sínu fyrsta skoti á rammann.

Staðan var sumsé 1:1 eftir venjulegan leiktíma og þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Allar spyrnur FH rötuðu í netið en þessir spyrntu: Baldur, Maggi, Danni, Simmi, Grani og Keli. Leikurinn endaði 6:5.

Varamenn sem komu inná: Callum, Svavar, Daníel, Simmi, Grani, Jói (markvörður) og Keli.

FH leikur um 5. sætið 11. apríl gegn ÍBV. Leikurinn fer fram kl. 14:45.
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson