FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

ÍBV - FH fim. 17. apríl kl. 14:00 (Deildarbikar)
fhingar@fhingar.net    Þri, 15. apríl 2003   
Upphitun FH mætir ÍBV á fimmtudaginn og ÍBV verður að vinna til að vera visst um að komast áfram í deildarbikarkeppninni. FH er hins vegar löngu fallið úr leik og hefur ekkert að spila fyrir nema ef vera skyldi heiðurinn. Við sársoltnir áhangendur myndum alveg þiggja eins og einn til tvo sigra áður en Íslandsmótið hefst til að glæða von í hjarta um skárra gengi en liðið hefur sýnt að undanförnu.

Síðustu leikir FH og ÍBV
FH hefur þegar mætt ÍBV tvisvar á árinu, í æfingaleik sem leikinn var á Ásvöllum 25. mars og á Canela Cup 11. apríl. Leikurinn á Ásvöllum var reyndar flautaður af vegna afleits veðurfars en þá var staðan 3:5 fyrir ÍBV. Sá leikur var fyrst og fremst til að meta Danina tvo sem leika nú með FH. Allan Borgvardt skoraði einmitt sín fyrstu mörk með FH í þessum leik. Leikurinn á Canela Cup tapaðist einnig þannig að við eigum harma að hefna.

Í fyrra unnu liðin heimaleiki sína í Símadeildinni í innbyrðis viðureignum. Á Hásteinsvelli fóru leikar 2-0 þar sem Bjarni Geir Viðarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoruðu mörkin. Heimir Guðjónsson var rekinn í bað á 89. mín.

Leikurinn gegn ÍBV í Kaplakrika var síðasti leikur tímabilsins og FH í gat átt það á hættu að falla í 1. deild ef þeir töpuðu og önnur úrslit yrðu þeim í óhag. Það var því töluvert í húfi. Leiknum lauk með sigri FH 2-1 þar sem Atli Viðar Björnsson og Jónas Grani Garðarsson skoruðu mörk FH en Tómas Ingi Tómasson potaði inn einu fyrir ÍBV í lokin.

Leikmenn ÍBV
Í ÍBV liðinu eru nokkur nöfn sem vert er að minnast á. Þar ber fyrstan að telja Birki Kristinsson markvörð sem varið hefur mark lengur en elstu menn muna. Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur reynst drjúgur við að skora í deildarbikarkeppninni, þrjú mörk í fimm leikjum. Þeir hafa svo fengið til liðs við sig að nýju Steingrím "pílu" Jóhannesson sem eflaust verður duglegur að hlaupa í sumar eins og undanfarin sumur. Á miðjunni verður Bjarnólfur Lárusson að hrekkja okkar mann Heimi Guðjónsson með yfirgangi og látum eins og hans er von og vísa.

Spá
Við spáum því hér á this.is/fh að nú taki FH-ingar upp Rambóhnífana og úrbeini eyjaskeggja svona rétt til að fá blóðbragð í munninn fyrir Íslandsmót (og leik gegn Haukum 24. apríl). Eitt núll, tvö núll, skiptir ekki máli, í guðanna bænum farið að vinna, við erum hættir að sofa á nóttinni.
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson