FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Ú - A - Höddi Magg say Ú - A - Höddi Magg
fhingar@fhingar.net    Mið, 16. apríl 2003   
Kombakk Hödda Magg Fyrsta alvöru "skúbb" this.is/fh lítur dagsins ljós og hvílíkt "skúbb". Heyrst hefur að sjálfur Hörður Magnússon hafi dregið fram skóna á ný og mætt á æfingu í dag.

Það verður að viðurkennast að hluti ritstjórnar this.is/fh lét einstaka sinnum óvönduð orð falla um kappann í aftanskini ferils hans en það var í hita leiksins og ekki illa meint (og Höddi var stundum rangstæður). Þó sólin hafi sest um stund virðist hún ætla að rísa á ný.

Lifandi goðsagnir
This.is/fh neitar að trúa því að það sé tilviljun að þegar ein goðsögn leggur skóna á hilluna taki önnur þá fram. Eins og menn vita Er Michael Jordan að leika sinn síðasta síðasta leik í kvöld (í þriðja sinn). Höddi á sumsé 2 kombökk eftir.

Það er ekki spurning að Höddi mun geta miðlað af reynslu sinni til kjúklinganna í framlínu FH en meðalaldur þeirra Atla, Allans, Simma og Tómasar er 21 ár.

Ég hef heyrt eftir aðstoðardómara í íslensku deildinni að Hörður hafi verið erfiðasti leikmaður fyrr og síðar að hafa gætur á því enginn kann eins vel og Höddi að hanga í varnarlínu og stinga sér á réttum tíma innfyrir.

Við erum ekki nokkrum vafa um að Höddi er í sama gæðaflokki og jafnaldrar hans fæddir 1966 enda afar góður árgangur. Nokkrir sem fæddir eru þetta ár: Teddy Sheringham, Gianfranco Zola, Martin Keown og Guðni Bergsson er meira að segja fæddur 1965.
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson