
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| 2. flokkur ÍBV 7 - 2. flokkur FH 0 | |
|
|
Hafnfirskir kjúklingar kjöldregnir af ranglátum reynsluboltum ÍBV-FH Það má með sanni segja að Vestmannaeyingar séu heiðursmenn. Þeir höfðu farið fram á að leiknum yrði frestað en KSÍ hafnaði því. FH bauð þá á móti að úrslit leiks liðanna frá Canela Cup myndu standa (1:0) en KSÍ hafnaði því. Vegna anna leikmanna meistaraflokks komustu liðin að heiðursmannasamkomulagi um að láta aðra flokka félaganna leika þennan leik. Sú var ekki raunin með lið ÍBV og báru þeir því við að ekki hefði verið hægt að hóa í lið en létu eiga sig að segja FH frá því. Meðalaldur byrjunarliðs ÍBV var um 23 ár en hjá FH var það 19 ár. Þess má geta að meðalaldur varamanna ÍBV var 35 ár en um 17 ár hjá FH. Upphaf leiks Byrjunarlið FH var þannig skipað að í marki var Jóhannes Kristjánsson, í miðri vörninni stóðu tveir af þremur leikmönnum meistaraflokks þeir Svavar og Daníel. Vinstri bakvörður var Vignir Sigfússon en hægra megin var Hermann Jónsson. Á miðri miðjunni voru þeir Birgir Jóhannson og fyrirliðinn Heimir Guðmundsson. Kantmenn voru Hjalti Brynjarsson (vinstri) og Árni Freyr Guðnason (hægri). Frammi voru svo Sigmundur Ástþórsson og Pétur Óskar Sigurðsson.
Við hjá this.is/fh lýsum yfir óánægju með lúaleg vinnubrögð ÍBV. Það er ekki laust við að manni detti í hug að markmiðið hafi verið að laga markatölu liðsins í deildarbikar en Fylkir komst í gær upp að hlið þeirra með 1:0 sigri á Grindavík |