
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| FH 1 - Valur 2 | |
|
|
Enn eitt tapið, við verjum ekki titilinn og augljóst að það vantar einhvern til að binda vörnina saman. Það kemur í ljós á morgun hvort Tommy Nielsen kemur til FH en eitthvað verður að gera.
FH-ingum er ef til vill vorkunn því veikindi og meiðsli hrjá leikmenn og það vantaði m.a. Ásgeir, Víði 2 stykki Emil, Frey og skosku bræðurna. FH tefldu meira að segja aðeins fram 4 varamönnum - þeim Tómasi Leifssyni, Daníel Einarssyni, Þorgeiri Jónssyni og Jóhannesi S. Kristjánssyni. Þær raddir heyrast að það sé óþarfi að hafa áhyggjur fyrr en 2-3 leikjum er lokið af Íslandsmóti en ég hefði haldið að þeir menn sem eru að spila núna þurfi að sanna sig í augum þjálfarans. Byrjunarliðið var svona: Daði í marki, Maggi Einars vinstri bakvörður, Hermann Albertsson hægri bakvörður og Svavar Sig. og Hrafnkell Kristjánsson miðverðir. Trúlega verður að telja að FH hafi stillt fram 5 á miðju en þeir Jón Þorgrímur og Sigmundur Ástþórs voru duglegir að fylgja með í sókn sem og Guðmundur Sævarss. Aðrir á miðju voru Jónas Grani og svo auðvitað Heimir (hertogi) Guðjónsson. Atli Viðar var einn frammi og hann vantar svolítið að láta vita af sér - láta varnarmenn finna fyrir sér og vera frekur á plássið í kringum sig. Strax á fimmtu mínútu voru veikleikamerki augljós á varnarlínunni. Svavar og Hrafnkell voru í vandræðum með að koma boltanum frá og Daði þurfti að hirða boltann af tánum af aðvífandi sóknarmanni Vals. Fimm mínútum síðar náðu Valsmenn skoti af teighorni en það var beint á Daða sem varði vel úr góðu færi. FH liðið tók sig saman og Grani fékk fína sendingu af hægri kanti inn í teig en náði ekki að setja boltann fyrir sig og sóknin fjaraði út. Strax mínútu seinna skoraði Jónsi eftir fínan undirbúning Hermanns en markið var dæmt af sökum rangstöðu sem ekki allir voru sammála um. Það reyndist ekki síðasta ákvörðun dómara og línuvarða sem féll FH í óhag án þess að ég vilji gera of mikið úr mistökum þeirra. Varnarlínan var óstyrk eins og fyrr var nefnt, einkum og sérílagi vinstra megin og það átti eftir að koma FH í koll. Hermann hljóp niður Valsmann sem hafði stungið sér innfyrir hann og dómarinn gat fátt annað gert en að dæma víti. Daði valdi rangt horn og Valsmenn voru komnir yfir á 18. mínútu. Hermann reyndi að jafna metin nokkrum mínútum seinna með skoti utan af velli sem rataði á rammann en var beint á markvörð Vals. Trúlega myndi hann nýtast betur sem vinstri kantur en vinstri bakvörður en mikið hallæri er í vörn FH en aftur á móti er nóg af mönnum á miðjuna. Fátt markvert gerðist fyrr en á 40. mínútu fyrri hálfleiks en þá komst Grani innfyrir með því að vippa boltanum yfir varnarmann Vals afar skemmtilega en komst ekki upp með að plata markvörð á sama hátt. Tveimur mínútum seinna slapp Atli Viðar einn innfyrir eftir einstaklega góða stungusendingu Hermanns en hann náði ekki til boltans og markvörður Vals náði að komast fyrir boltann. Simmi jafnaði metin fyrir FH mínútu seinna þegar hann skallaði boltann í netið af stuttu færi eftir góðan undirbúning Gumma Sævars. Það mátti ekki miklu muna örskömmu seinna að FH kæmist yfir þegar Jónsi komst innfyrir vörn Vals hægra megin en varnarmaður náði að komast í veg fyrir sendinguna fyrir markið. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks vildu Valsmenn fá dæmt víti þegar einn þeirra hrundi niður í teig FH og töldu að Heimir hefði farið aftan í hann. Ekkert var dæmt og ég verð að segja eins og herra Wenger - ég sá þetta nú ekki nógu vel. Í Reykjaneshöllinni er trúlega boðið upp á skársta aðstöðu fyrir áhorfendur af þeim höllum sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru bekkir meðfram vellinum endilöngum og engin net sem byrgja manni sýn. Aftur er ögn kaldara þar en annarsstaðar en það kann að helgast af því að það var sannkallað skítaveður úti. Í fyrri hálfleik fékk FH liðið ótölulegan fjölda rangstöðudóma á sig og á því var engin breyting í þeim síðari. Fljótlega eftir að seinni hálfleikur hófst var Jónsi fljótur að hugsa og henti boltanum úr innkasti til Atla sem slapp inn á teig og sendi ágætan bolta fyrir en þar var enginn FH-ingur. Á 53. mínútu sendi Maggi Grana einan inn gegn markverði en hann klúðraði fáránlega - hljóp með boltann út til hægri og markvörðurinn þvingaði hann nánast útaf með boltann. Fljótlega eftir þetta skoruðu Valsmenn sitt annað mark eftir að hafa fengið að leika lausum hala í teig FH um hríð. Á 56. mínútu fékk Atli Viðar frían skalla í teig Vals en hitti ekki rammann. Rétt skömmu seinna komust FHingar 3 gegn 3 Valsmönnum en náðu ekki að nýta sér það. FH átti að fá víti þegar klukkutími var liðinn af leiknum er Jónsi var hlaupinn niður í teig Vals en ekkert var dæmt. Þetta var að mörgu leiti mjög svipað atvik og hafði átt sér stað þegar Valur fékk dæmt víti en þrátt fyrir hávær mótmæli FH var ekkert dæmt. Línuvörður sem stóð við hlið okkar reyndi að tjá sig um málið við okkur en það er líklega hollast að vitna ekki í tveggja manna tal enda ekki allt sem fór úr mínum munni prenthæft. Tíu mínútum seinna skipti Óli Daníel Einarssyni inná fyrir Simma. Daníel fór í hægri bakvörð, Maggi gerðist vinstri bakvörður og Hermann færði sig fram á miðju. Daníel stóð sig nokkuð vel það sem eftir lifði leiks og var duglegur að sækja fram en missti sjaldan sjónar af einum fljótasta kantmanni Vals - Matthíasti Guðmundssyni. Atli Viðar komst enn einu sinni inn fyrir vörn Vals á 69. mínútu en varnarmaður náði að skjótast fram fyrir hann og skýldi boltanum útaf. Skömmu eftir þetta sendi Gummi Sævars á Grana sem óvaldaður inni í teig negldi yfir markið. Gummi Sævars, sem bjó til helling af af færum í leiknum, sendi svo Atla Viðar einan inn sem negldi í markvörð Vals, frekar en að hann hafi varið bylmingsskot Atla. Upp úr því fékk Grani færi hinum megin á teignum en skaut yfir. FH liðið setti mikla pressu á Val í lok seinni hálfleiks líkt og það gerði í lok þess fyrri og Hermann komst í gott færi sem markvörður Vals varði vel og Maggi komst upp að endamörkum en kom ekki boltanum almennilega fyrir áður en dómarinn flautaði til leiksloka. Samantekt Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott því að ýmislegt var jákvætt við leik FH liðsins. Miðjuspilið gengur ágætlega og Heimir er afar duglegur að vinna boltann. Hann var aftur á móti mistækur í að skila honum frá sér er leið á leikinn. Fram á við vorum við bitlausir framan af leik en færin vantaði ekki. Vandamálið er að slútta. Aðal höfuðverkur FH liðsins er varnarleikurinn og það vantar bersýnilega einhvern sterkan leiðtoga til að binda varnarlínuna saman og tala nýliðana í gegnum leikinn. Maður leiksins : Gummi Sævars - sívinnandi og afar skapandi |