ÍA9
FH7
Valur6
Stjarnan5
Keflavík4
KR4
Breiðablik4
Fram3
Selfoss3
Fylkir2
ÍBV1
Grindavík1

Næsti leikur

Pepsi-deild karla
20.05.2012 20:00
FH vs Breiðablik
Kaplakrikavöllur

Síðasti Leikur

Pepsi-deild karla
Selfoss 0 FH 1

Tweets

Fótbolti.net

FH úr 2000km fjærlægð
Árni Rúnar Karlsson    Mið, 04. maí 2011   

Við höfðum samband við Andra Daða Aðalsteinsson og báðum hann um að setja á blað fyrir okkur líf FHings í 2000km fjærlægð. Ef þið viljið skrifa pistla um FH eða bara íslenskan fótbolta þá endilega sendið þá á okkur og við birtum þá. Smellið á lesa meira til þess að lesa pistilinn frá Andra Daða.

 

 

FH úr 2000km fjarðlægð

Það verður að viðurkennast að lífð er ekki alltaf tekið út með sældinni. Jújú, 20 stiga hiti og sól, ströndin með grill og tilheyrandi, golfkylfurnar fá ekkert frí og lærdómurinn fer að þyngjast. Svona hljómar kannski skólalífið í henni Danmörkinni, en á þessum tíma árs þá fyllist hugurinn og hjartað af söknuði til okkar ástkæra Fimleikafélags. Söknuðurinn af því að mæta inná fallegasta vallarstæði í alheiminum og styðja sigurvegara til sigurs. Allar þær ófáu rútuferða, flugferða, bátsferða, eðalvagnsferða osf með öllum þeim frábæru FH-ingum sem eru með það eitt að markmiði, að styðja sitt ástkæra félag.

En ekki ætla ég að halda áfram að vorkenna sjálfum mér hérna, það var víst ég sem að tók þessa ákvörðun. En þetta kennir manni það að taka aldrei FH sem sjálfsögðum hlut og er ég bara að benda ykkur á þau forréttindi sem að þið njótið að hafa RISANN í bakgarðinum. Fólk ætti að nýta hvert tækifæri sem gefst til að mæta í Krikann og láta í sér heyra, reyndar ætti að vera löggildur frídagur þegar að FH er að spila, en það er aftur á móti bara mín skoðun. Mafían er heldur ekki lokaður hópur, ég þekki það af eignin raun. Mér var tekið opnum örmum á sínum tíma þegar að ég ákvað að prufa að hita upp með þeim fyrir leiki og hvet ég alla til að gera það sama. Það á engin eftir að sjá eftir því!

Einnig ber að mynnast á þá björtu tíma sem eru framundan hjá FH. Ekki það að síðastliðin ár hafa ekki verið björt og skemmtileg en menn meiga aldrei slaka á til að halda sér á toppnum. Yngri flokkar FH hafa unnið allt sem hægt er að vinna undanfarin ár og sjáum við á hverju sumri unga stráka stíga sín fyrstu skref með meistaraflokk. Þetta eru fæddir sigurvegarar og hafa líka verið uppaldir sem slíkir. Einnig hefur Meistari Heimir sýnt það að FH er ekkert á þeim buxunum að slaka á, með því að fá frábæra viðbót inn í liðið til að auka breidd og samkeppni munum við berjast um þá titla sem í boði eru alveg til loka. Við gerum kröfu á FH um að gera það, en megum ekki gleyma því að þeir gera það ekki nema með stuðningi okkar.

En aftur að lífi FH-ingsins í Danmörku. Þegar að ég kom fyrst hingað fyrir 4 árum síðan var eini sénsinn að fylgjast með FH í gegnum boltavaktina á Rás2 (eða 1, man það ekki). Þá fékk maður rétt svo að heyra frá leiknum þegar að mark var skorað því það var fylgst með öllum leikjum í einu. Það hefur heldur betur breyst til muna og ekki fór það framhjá nágrönnum mínum þegar að ég horfði á bikarúrslitaleikinn á netinu í fyrra haust. SAY NO MORE! Þegar að þessi grein er skrifuð ligg ég eins og klessa upp í sófa með heyrnartól og hlusta á hann Ými lýsa leik Vals og FH. Það verður að viðurkennast að þetta frábæra framtak hjá fhingum.net hvort sem er að lýsa leikjum í beinni á netinu eða halda uppi frábærri heimasíðu hefur auðveldað líf FH-ingsins í útlöndum. Þessi ómetanlega vinna sem þessir drengir leggja í þetta ætti að vera öðrum stuðningsmönnum hvatning til að gera eins vel og við getum. Við getum alltaf gert betur.

ALLT FYRIR FÉLAGIÐ!

Kveðja

Andri Daði Aðalsteinsson

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson