
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| 2 sigrar hjá 2.flokknum á stuttum tíma | |
|
|
2.flokkur karla er í þeirri aðstöðu að ef þeir vinna leikina sem þeir eiga eftir verða þeir íslands- og bikarmeistarar. Eins og staðan er í dag eru þeir einu stigi á undan Breiðablik í deildinni og eru komnir í úrslit bikarsins eftir sigur á Val í vítaspyrnukeppni. Strákarnir mættu Fylki á fimmtudag í Árbænum og unnu 3-1 og fyrr í dag mættu þeir KA í krikanum og unnu 5-1.
Á fimmtudaginn mættu þeir Fylki í erfiðum leik í kaflaskiptu veðri. FH byrjaði betur og komst yfir um miðjan fyrri hálfleikinn þegar Viktor Segatta skoraði af stuttu færi. Á 35.mínútu fengu FHingar vítaspyrnu þegar Andri Gíslason slapp einn í gegn og var tekinn niður af varnarmanni, stuðningsmenn FH heimtuðu rautt en urðu ekki að ósk sinni og fékk varnarmaðurinn aðeins gult spjald, þá stígur Björn Berg Bryde fyrirliði á punktinn þegar dómari stoppar allt í einu leikinn og rekur Andra Gíslason framherja FH útaf fyrir að gefa leikmann Fylkis olnbogaskot, heldur vafasamur dómur. Björn tekur síðan vítið og skorar af öryggi en Bjössi er búinn að skora úr öllum vítaspyrnum sínum sem eru orðnar fimm ef mér skjátlast ekki. FH liðið datt síðan aftar á völlinn í síðari hálfleik en náðu að halda forystunni allt þar til 1 mínúta var eftir af venjulegum leiktíma að Fylkir minnkuðu muninn. Fylkisliðið hélt áfram að pressa og reyna jafna en það var FH sem gerði útaf við leikinn í uppbótartíma þegar varamaðurinn Hilmar Ástþórsson tryggði FH 3-1 sigur. Bestu menn FH voru Björn Berg Bryde og Brynjar Ásgeir Guðmundsson en vörnin var mjög góð í leiknum, einnig var Andri Gíslason góður fram að rauða spjaldinu. FH mætti KA í dag og átti harma að hefna en þeir töpuðu leiknum á Akureyri 3-2 en í þeim leik klikkaði FH liðið aragrúa af færum en það var annað upp á teningnum núna. FHingar komu sterkir til leiks og komust í 2-0 snemma leiks en fengu svo á sig mark stuttu eftir það. Þeir voru með leikinn í sínum höndum og KA náði ekki að ógna mikið markinu. FH komst síðan í 3-1 fyrir hlé þegar Viktor Segatta skoraði sitt annað mark í leiknum. FH bætti svo við tveimur mörkum í síðari hálfleik frá Aroni Frey Eiríkssyni og Hirti Þórissyni og unnu að lokum öruggan 5-1 sigur. Viktor Segatta átti mjög góðan leik í dag og skoraði 2 mörk, aðrir voru svona solid en það var enginn sem var eitthvað slakur. FH mætir næst Þór á Akureyri sem verður vafalaust erfiður leikur en FH tapaði fyrri leiknum í krikanum. |