
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Umfjöllun: KR - FH 0 - 1 | |
|
|
KR hafði fyrir leikinn í kvöld verið á miklu flugi og skorað 10 mörk í síðustu þrem leikjum. Þeir léku án Bjarna Guðjónssonar og Kjartan Henry Finnbogasonar sem tóku út leikbann. Hjá FH var einnig nokkuð um breytingar því Ólafur Páll Snorrasson og Björn Daníel Sverrisson tóku út leikbann. Í þeirra stað komu þeir Gunnar Már Guðmundsson og Bjarki Gunnlaugsson sem sneri aftur úr meiðslum. FH hófu leikinn af miklum krafti og fengu strax hprnspyrnu eftir aðeins 30 sekúndur. Hjörtur Logi tók spyrnunna og fann kollinn á Atla Viðari sem skallaði boltan glæsilega efst uppí markhornið en KRingar náðu að bjarga á línu á síðustu stundu. Atli Viðar átti síðan ágætist skot á markið á 9 mínútu en á 25 mínútu kom fyrsta og eina mark leiksins. Hjörtur Logi tók innkast frá vinstri kanti, boltinn barst til Gunnars Má sem skallaði boltann á Atla Guðna sem átti einfalda en frábæra sendingu inn fyrir vörnina á Atla Viðar Björnsson sem skoraði glæsilegt mark, neðst í hægra hornið fram hjá Lars Ivar í marki KR. 0 - 1 fyrir FH Lítið gerðist næstu 10 mínútur en Atli Guðna reyndi að sóla sig í gegnum vörn KR sem tóku boltann af honum. Síðustu 10 mínúturnar í fyrri hálfleik voru algerlega í eigu KRinga sem sóttu án afláts og var það aðeins Gunnleifur Gunnleifsson sem sá við framherjum KR. Á 40 mínútu átti Óskar Örn Hauksson hörkuskot frá vítateigshorninu vinstra megin en Gunnleifur varði. Hann hélt ekki boltanum en náði að handsama hann rétt áður en Guðjón Baldvinsson renndi sér í boltann. Afar huguð markvarsla hjá Gulla sem urfti að hafa sig allan við nokkrum mínútum síðar þegar Óskar Örn átti hörkuskot af 25 metra fær sem Gunnleifur varði í horn. Á sömu mínútu þeirri 45 varði Gunnleifur enn og aftur og í þetta sinn frá Viktori Erni og svo aftur frá Guðjóni Baldvinssyni sem fylgdi vel á eftir en Gunnleifur sýndi góða takta og hélt boltanum Staðan í hálfleik 0 - 1 FH hófu fyrstu mínútur seinni hálfleiks ágætlega og áttu Atli Viðar og Matti Villa báðir skot framhjá markinu. Seinni hálfleikurinn var annars algerlega í eigu KRinga og sóttu þeir stíft oft á tíðum en vörn FH stóð sig stórkostlega eins og hún gerði allan leikinn. KR voru ekki að skapa sér mörg alvöru færi en áttu hinsvegar mörg skot. Þeirra besta færi í seinni hálfleik kom á 52 mínútu en þá varði Gunnleifur stórkostlega í tvígang. Fyrst frá Dofra Snorrasyni og síðan frá Mark Rutgers, hreint út sagt stórkostlegar vörslur og gátu FH þakkað Gulla fyrir að halda sér í leiknum á þem tímapunkti. FH gerðu breytingu á 55 mínútu þegar að Hákon Astli Hallfreðsson kom inná fyrir Bjarka Gunnlaugsson en Hákon spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma. KR héldu áfram að pressa en leikurinn róaðist nokkuð þegar að Heimir setti Torger Motland inná fyrir Gunnar Már Guðmundsson. Matti fór við það á miðjuna. Í rauninni ekkert mikið við leikinn að bæta því þó að pressan væri mikil undir lokin var vörn FH og Gulli vel á verði og lokatölur 0-1. Ótrúlega þýðingarmikill sigur og eru FH enn með í baráttunni um titilinn. Gunnleifur, Tommy, Freysi, Hjörtur og Atli Viðar voru bestu menn FH í leiknum. Næsti leikur er þann 12.September gegn Selfossi á Kaplakrika. Það má búast við einkunum leikmanna á morgun. Quote of the day Fréttamaður: er Gunnleifur besti markmaður landsins? Heimir Guðjóns: já það er engin spurning, þess vegna er hann í FH! |