|
Umfjöllun og Einkunnir gegn Grindavík |
|
Jónas Ýmir Jónasson
Mið, 25. ágúst 2010 |
|
|
Vegna tímaleysis síðustu viku þá fáum við að birta umfjöllun frá fotbolti.net en einkunnir eru gefnar af einkunnanefnd fhingar.net Grindavík 3–1 FH Atli Viðar Björnsson ´18 Gilles Mbang Ondo ´24 Gilles Mbang Ondo ´90 Óli Baldur Bjarnason ´94
Grindavík tóku á móti nýkrýndum bikarmeisturum FH í kvöld þar sem að veðrið og vallaraðstæður voru með eindæmum frábær.
Heimamenn áttu fyrsta færi leiksins þegar Scott Ramsay átti fast skot í varnarmann og boltinn fór útá kant og þar sendi Scotty boltann fyrir og Gilles Ondo skallaði rétt yfir. Atli Viðar Björnsson átti hörkuskot inní teig þar sem hann var galopin en Óskar Pétursson varði vel. Atla brást ekki bogalistinn í næsta marki þegar að Jóhann Helgason missti boltann á sínum vallarhelmingi og var Matthías Vilhjálmsson snöggur að ná til boltans og þaut upp völlinn og átti skot sem að Jóhann Helgason náði að komast fyrir en boltinn datt fyrir Atla Viðar Björnsson og lagði hann í autt markið þar sem að Óskar í markinu var eitthvað áttaviltur. Eftir markið duttu heimamenn ekkert niður og FH menn ekki heldur. Grétar Hjartarson átti fínt skot sem leit út fyrir að fara inn en boltinn fór rétt framhjá. Á 24 kom annað mark í leikinn og var þar á ferðinni Gilles Mbang Ondo. Það kom löng sending inn fyrir vörnina Ondo tók við boltanum og náði að snúa sér inn að markinu og skoraði. Lítið gerðist eftir þetta og var svona til skiptis hálfæri og var staðan 1-1 þegar að var flautað til hálfleiks. Síðari hálfleikur var ekki eins fjörlegur og sá fyrri. Grétar Ólafur Hjartarson var sloppinn einn í gegn en Tommy Nielsen var alveg við hælana á honum en Grétar skaut yfir. Matthías Vilhjálmsson átti skalla rétt framhjá markinu Heimamenn lágu aftarlega þegar að leið á leikinn og voru FH menn meira með boltann en voru ekki að ná að skapa sér almennileg færi. Lítið gerðist þangað til að á 88mínútu þá slapp Gilles Ondo einn í gegn eftir að FH ingar voru að reyna sækja á mörgum mönnum og stakk Ondo alla af og átti aðeins Gunnleif Gunnleifsson í markinu eftir en Gunnleifur varð mjög vel í markinu. 2mínútum síðar þá kom annað mark og þar var Gilles Mbang Ondo ekkert að tvínóna við hlutina hann slapp einn í gegn og var vinstra megin við teiginn Tommy Nielsen var til varnar en Ondo skoraði bara eitt það flottasta mark sem skorað hefur verið á þessum velli hann sneiddi boltann uppí vínkilinn þvílíkt mark. FH sóttu eins og lífið var að leisa og voru með marga menn í sókn en heimamenn náðu að verjast mjög vel og náðu boltanum eftir aukaspyrnu hjá fimleikafélaginu og kom sending upp völlinn og þar var Gilles Ondo sá sneggsti á suðurnesjum hann átti Guðmund Sævarsson og lék hann grátt í og skaut á markið en Gunnleifur varði en Óli Baldur Bjarnason náði að fylgja á eftir og skoraði glæsilega Stuttu síðar var flautað til leiks loka.
FH : Gunnleifur Gunnleifsson 7, Guðmundur Sævarsson 5 , Hjörtur Logi Valgarðsson 7*, Tommy Nielsen 5, Freyr Bjarnason 6, Pétur Viðarsson 5, Björn Daníel Sverrirsson 6, Matthías Vilhjálmsson 6, Atli Guðnason 5, Atli Viðar Björnsson 7, Ólafur Páll Snorrason 5 Áhofendur: 1132
|