
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Bikarviðtal við Gunnleif | |
|
![]() Við heyrðum hljóðið í Gunnleifi Gunnleifssyni og spurðum hann útí bikarleikinn og framhaldið. Jæja Gulli, þegar þú komst í FH sagðir þú að það væri komin tími til að vinna titla, nú er sá fyrsti stóri kominn. Lýstu þessari stund þegar flautað var til leiksloka á laugardag? Tilfinningin var auðvitað stórkostlega góð. Ég er fyrst og fremst stoltur að vera hluti af þessu liði og félagi og að vinna þennan stóra bikarúrslitaleik með þessum strákum var stór stund fyrir mig. Ég mun búa að þessu alla ævi. Dagurinn var auðvitað fullkominn í alla staði, frá morgni til kvölds. Stuðningurinn við liðið var vægast sagt eftirminnilegur þar sem Mafían og aðrir FH-ingar fóru gjörsamlega á kostum og ég lít á það sem forréttindi að fá að spila fyrir félag sem er með svona fólk innanborðs. Finnst þér ekki tilfinning enn betri eftir sem líður á? Það sem ég tek með mér úr þessum leik er auðvitað mikil gleði og ekki síður sjálfstraust fyrir framhaldið, en svo er auðvitað bara næsti leikur. einmitt, á morgun byrjar deildin aftur og gullið tækifæri fyrir okkur að komast alvarlega í baráttunna aftur, hvernig leggst leikurinn á morgun og þessi lokakafli deildarinnar í þig? Leikurinn á morgun getur skilað okkur af fullum krafti í toppbaráttuna. Miðað við það sem býr í þessu liði þá geri ég þá kröfu á okkur að taka 3. stig í Grindavík gegn annars mjög góðu lið. Auðvitað spilum við einn leik í einu þannig að öll umræða um leikina á eftir Grindavík verður að bíða betri tíma. Ég hvet alla FH-inga að fera sér ferð til Grindavíkur á morgun og styðja okkur í að taka öll stigin með okkur heim í Krikann. ÁFRAM FH þökkum Gunnleifi kærlega fyrir þetta |