
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Umfjöllun: FH í úrslit eftir sigur á Víking Ó | |
|
|
FH er komið í úrslitaleik Visa Bikarsins eftir að hafa sigrað Víkinga 3 - 1 í Kaplakrika í gærkvöldi og mæta annaðhvort Fram eða KR leikurinn fer fram þann 14.Ágúst. Stuðningsmenn Víkings Ólafsvík byrjuðu að hita upp snemma fyrir leikinn og hittust á Hvaleyrarbraut kl 16:30 og voru mættir í stúkunna um klukkutíma fyrir leik, allir klæddir í bláa boli og eftirvæntingin og stemmningin skein úr andlitum þeirra. Víkings liðið mætti einnig mjög ákveðið til leiks og byrjuðu þeir leikinn mjög vel. Fyrsta færið kom á 13 mín þegar þeir tóku innkast frá hægri og boltinn barst til Artjom Goncars sem skaut að marki en Pétur Viðarsson gerði vel og blokkaði skotið. Þegar 25 mínútur voru liðnar af leiknum tóku Víkingar vel útfærða aukaspyrnu hægra megin við teiginn, Brynjar Kristmundsson tók spyrnuna og lagði knöttinn út á Eldar Masic sem átti frábært skot sem Gunnleifur varði vel. Tomasz Luba fylgdi vel á eftir og hefði átt að gera betur þegar hann skaut í stöngina frá markteig. Jón Ragnar meiddist á ökkla í aðdraganda aukaspyrnunar, kom aftur inn á völlinn en þurfti að fara aftur út af skömmu síðar draghaltur. Inná kom Gunnar Már Guðmundsson og tóku stöðu Björns Daníels sem færði sig í vinstri bakvörðinn þar sem hann átti fínan leik. Undir lok fyrri hálfleiks var sóknarþungi FH-inga orðin meiri og björguðu Ólafsvíkingar meðal annars einu sinni á marklínu. Á 40. mínútu náðu Íslandsmeistararnir forystunni. Ólafur Páll átti góða sendingu inní teig þar sem Atli Guðnason vippaði boltanum til Gunnars Márs sem skoraði með skalla frá markteig. Víkingar voru þó ekki af baki dottnir því það tók þá ekki nema tvær mínútur að jafna metin. Tommy Nielsen skoraði sjálfsmark, þrumaði boltanum í netið af stuttu færi eftir að Þorsteinn Már Ragnarsson hafði gert virkilega vel og náði góðri fyrirgjöf inn í teiginn en hreinsun Tommy endaði með sjálfsmarki. Staðan var því orðin 1-1 en Víkingar björguðu ævintýralega á línu undir lok fyrri hálfleiks og ósáttur Heimir Guðjónsson las yfir FH liðinu í háfleik. FH-ingarnir byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og náðu forystunni á 57 mínútu þegar tæpur klukkutími var liðinn, en þar var á ferð Dalvíkingurinn Atli Viðar Björnsson sem skoraði með góðum skalla eftir sendingu frá Matta Vill en hann tók við stuttu horni frá Óla Palla og sendi fínan bolta á atla. Víkingarnir hefðu getað jafnað rúmum tíu mínútum síðar þegar Edin Besilja tók frábæra aukaspyrnu en Gunnleifur í marki FH varði stórglæsilega í horn. Stuttu síðar var dæmd vítaspyrna á Víking þegar Tomasz Luba felldi Björn Daníel Sverrisson inni í vítateig. Á punktinn steig Matthías Vilhjálmsson og skoraði hann af miklu öryggi 3 - 1 Eftir vítið var þetta aldrei spurning hvort liðið myndi sigra, Þorsteinn Már komst reyndar í gott færi eftir vandræðagang í vörn FH en tók skot fyrir utan teig í stað þess að færa sig nær markinu. Víkingar mega vera stoltir af sínum leik og sinni frammistöðu í þessari bikarkeppni. Þeir komu ákveðnir til leiks og skal engan undra að þeir séu efstir í 2.deild. Stuðningsmenn liðsins voru fjölmargir og létu vel í sér heyra og mega báðir stuðningshópar vera stoltir af sinni frammistöðu. En FH-ingar komnir í bikarúrslitin og þrátt fyrir hæga byrjun liðsins í leiknum voru Íslandsmeistararnir einfaldlega einu númeri of stórir fyrir Ólafsvíkinga. Ljóst að nú verðum við FHingar að fjölmenna í Laugardalinn þann 14.Ágúst Byrjunarlið FH: Gunnleifur Gunnleifsson , Tommy Nielsen, Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason, Bjarki Bergmann Gunnlaugsson, Guðmundur Sævarsson, Jón Ragnar Jónsson, Atli Viðar Björnsson, Ólafur Páll Snorrason. |