
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Framarar koma í heimsókn í Krikann | |
|
|
FH mætir Fram í Pepsi-deild karla í kvöld, en leikurinn er liður af elleftu umferðinni sem þó klárast ekki fyrr en seint í júlí með leik KR og Fylkis, en bæði þessi lið eru í Evrópukeppninni og eiga þar leik á morgun. Leikurinn hefst klukkan 20.00 í kvöld, en það er vegna þess að hann er sjónvarpsleikur. FH-liðið hefur farið brösulega af stað eins og flestir vita, en liðið er að rétta úr kútnum. FH vann báða leikina gegn Fram árið 2009, fyrst í Krikanum 2-1 og svo í Laugardalnum 0-2. Fram hefur ekki riðið feitum hesti í Krikanum undanfarið og vonandi verður áframhald á því, en þeir hafa einungis fengið eitt stig í síðustu fimm heimsóknum og það var 3-3 jafntefli árið 2007. Frömurum hefur gengið brösulega á útivelli, en ekki verið að tapa leikjum þar hinsvegar; gert þrjú jafntefli og sigrað einn en þar var á gervirgasinu á Selfossi, 2-1. Tveir leikmenn verða í banni í kvöld. Jón Guðni Fjóluson gerði sig sekan um heimskulegt brot í leik Fram og Vals á dögunum þegar hann steig ofaná Danny König, framherja Valsmann, og fékk að líta rautt spjald. Hann er því í tveggja leikja banni, vegna þess að þetta er hans annað rauða spjald og það er klárlega jákvætt fyrir FH-liðið því Jón Guðni hefur verið að spila vel. Það þarf að hafa góðar hætur á Ívari Björnssyni og Hjálmari Þórarinssyni á morgun. Þeir hafa gert átta af sautján mörkum Framara. Ívar hefur þó ekki skorað síðan 14.júní, en þrátt fyrir það þarf að hafa góðar gætur á honum. Markahæstur hjá okkur FH-inum er það Atli Viðar Björnsson með þrjú mörk, en Ólafur Páll Snorrason og Matthías Vilhjálmsson koma í humátt með þrjú mörk þar á eftir. Við hvetjum alla til þess að flykkjast á völlinn. Fram-liðið er ofarlega í töflunni, en með sigri í Kaplakrika í kvöld fer FH-liðið uppfyrir Fram. Leiknum verður eins og öllum öðrum heimaleikjum FH, lýst í beinni útsendingu á FH-Radio og hefst útsendingin um stundarfjórðungi fyrir leik með tónlistarveislu og síðan munu þeir Jónas Ýmir Jónasson og Árni Rúnar Karlsson, lýsa leiknum. ÁFRAM FH! |