Keflavík og FH skildu jöfn á glænýjum Sparisjóðsvelli í Keflavík þar sem spilamennska liðanna var líkt og dagur og nótt. Keflvíkingar spiluðu agaðan varnarbolta og freistuðu þess að beita skyndisóknum á meðan FH-ingarnir voru mun meira með knöttinn og voru mun ákafari í sóknarleiknum. Niðurstaða leiksins var þó 1-1 jafntefli þar sem Guðmundur Steinarsson og Ólafur Páll Snorrason skoruðu mörkin.
Gestirnir úr Hafnarfirðinum byrjuðu leikinn talsvert betur og tóku strax stjórnina. Matthías Vilhjálmsson hefði átt að koma FH-ingum yfir strax á 5. mínútu þegar hann skapaði sér gott færi með glæsilegu einstaklingsframtaki en skot hans var varið í hornspyrnu.
FH-ingar voru áfram talsvert meira með boltann en án þess þó að skapa sér nein teljandi dauðafæri, en Keflvíkingarnir lágu aftarlega og var erfitt að brjótast í gegnum varnarmúr þeirra. Gestirnir virtust þó alltaf líklegri til að skora fyrsta mark leiksins heldur en heimamenn, en sú reyndist þó ekki vera raunin því að Guðmundur Steinarsson kom Keflvíkingum yfir þegar rétt tæpur hálftími var liðinn.
Keflvíkingar höfðu þá aðeins verið farnir að sækja í sig veðrið og Guðmundur keyrði upp kantinn og átti síðan skot sem Gunnleifur Vignir Gunnleifsson markvörður FH-inga varði klaufalega inn í markið. Bjóst Gunnleifur við fyrirgjöf og var aðeins of lengi að átta sig á skotinu og var heppnin með Guðmundi í þetta skiptið og staðan 1-0 fyrir Keflavík, þvert gegn gangi leiksins.
FH-ingar misstu þó ekki dampinn og ekki allt of löngu síðar fengu þeir víti þegar brotið var á Atla Guðnasyni inni í teig Keflvíkinga. Á vítapunktinn steig Tommy Nielsen en víti hans var með eindæmum skelfilegt og fór hátt yfir markið.
Skömmu síðar kom Atli Viðar Björnsson sér í gott skotfæri en skot hans fór rétt framhjá markinu og Keflvíkingar enn yfir. FH-ingar hefðu síðan átt að fá annað víti þegar boltinn fór í höndina á Einari Orra Einarssyni en ekkert var dæmt. Skömmu síðar var flautað til leikhlés og staðan enn 1-0 fyrir Keflavík.
Síðari hálfleikurinn byrjaði á svipaðan hátt og sá fyrri og voru FH-ingarnir meira ógnandi. Hjörtur Logi Valgarðsson átti flott skot snemma síðari hálfleiksins sem Ómar í marki Keflavíkur varði glæsilega. Ólafur Páll Snorrason var einnig mjög líflegur í öllum sínum aðgerðum og átti hann margar hættulegar fyrirgjafir inn í teig Keflvíkinga. Þar vantaði þó alltaf herslumuninn og FH-ingum tókst aldrei að nýta sér fyrirgjafir Ólafs.
Það var þó Ólafur sem skoraði jöfnunarmark FH-inga þegar rúmur klukkutími var liðinn af leiknum, en hann átti glæsilegt skot utan vítateigs sem var gersamlega óverjandi fyrir markvörð Keflvíkinga. Staðan orðin jöfn og ekki hægt að segja annað en að það hafi verið verðskuldað.
Atli Viðar Björnsson bætti næstum því við marki fyrir FH skömmu síðar en varnarmaður Keflavíkur bjargaði á línu. Heimamenn geystust síðan í skyndisókn og Magnús Sverrir Þorsteinsson komst einn í gegn á móti Gunnleifi. Landsliðsmarkvörðurinn varði þó frábærlega frá Magnúsi og var staðan því enn jöfn.
FH-ingarnir voru ákveðnari en tókst þó ekki að koma boltanum yfir marklínuna og leiknum lauk því með 1-1 jafntefli. FH-ingarnir eru sjálfsagt súrir yfir því að hafa ekki tekið öll þrjú stigin en Keflvíkingar virkuðu óvenju varnarsinnaðir miðað við það að þeir voru á heimavelli og gátu náð toppsætinu á nýjan leik með sigri.
Keflavík er því enn í 2. sæti deildarinnar með 19 stig en FH-ingar eru í því 6. með 15 stig. Deildin er samt gríðarlega þétt og það er engin spurning að allt getur gerst í toppbaráttunni.
Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson (M), Alen Sutej, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson (F), Ian Paul McShane, Einar Orri Einarsson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson.
Byrjunarlið FH: Gunnleifur Gunnleifsson (M), Tommy Nielsen, Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason, Guðmundur Sævarsson, Atli Viðar Björnsson, Hafþór Þrastarson, Ólafur Páll Snorrason, Hjörtur Logi Valgarðsson.
Gul spjöld: Guðmundur Steinarsson (Keflavík), Bjarni Hólm Aðalsteinsson (Keflavík), Pétur Viðarsson (FH), Guðmundur Sævarsson (FH).
Maður leiksins: Ólafur Páll Snorrason
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 2170
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina:
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=93788#ixzz0snKxr8t9