|
Viktor Örn fer á kostum með Víking R |
|
Jónas Ýmir Jónasson
Fös, 02. júlí 2010 |
|
 Viktor Örn Guðmundsson hefur farið á kostum sem af er í 1.Deildinni en þar er hann á láni hjá Víkingum Reykjavík. Viktor Örn hefur spilað samtals 9 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 8 mörk. Í leiknum gegn ÍR í gær skoraði hann 2 mörk, lagði upp eitt og fiskaði eitt víti í algjörum stórleik en umsögn um leikinn má lesa á www.vikingur.net
Af öðrum FHingum sem er í láni þá er það að frétta að Eiríkur Kúld hefur spilað 6 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim 3 mörk, þrennu í bikarnum. Þá er Brynjar Ben í byrjunarliðinu hjá Leiknir R og hefur hann skorað 2 mörk sem af er. Ljóst að þessi stefna FH að lána unga leikmenn er að virka vel enn á ný. |