FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Umfj.: Þolinmæðisverk þegar FH sigraði KA
Anton Ingi Leifsson    Fim, 01. júlí 2010   

FH lagði í kvöld KA að velli, 3-0, í VISA-bikar karla og tryggði sér því sæti í undanúrslitum bikarsins. Þolinmæðin skilaði sér, en staðan var markalaus í hálfleik. Ólafur Páll Snorrason skoraði tvö mörk og Matthías Vilhjálmsson eitt stykki, en Matthías og Óli Páll áttu mjög góðan leik eins og allt liðið.

Okkar menn byrjuðu leikinn svosem ágætlega, létu boltann ganga á milli manna og þolinmæði en það vantaði meiri hraða í leikinn. Á 15.mínútu kom ágætis bolti fyrir markið og Matthías Vilhjálmsson reyndi bakfallspyrnu, en Akureyringar komust fyrir boltann. Tveimur mínútum síðar var keyrt inn í bakið á Birni Daníel og klárt víti, að minnsta kosti frá sjónarhorninu í stúkunni og FH-ingarnir í teignum vildu ólmir fá víti, en annars ágætur dómari leiksins Gunnar Jarl dæmdi ekkert.

Eins og fyrr segir höfðu við leikinn í okkur höndum. Við fengum sjö hornspyrnur í fyrri hálfleik og áttum nokkra ágætis skalla sem við náðum ekki að nýta okkur og niðurstaðan í hálfleik var að staðan var 0-0. Þónokkur fjöldi sem lagði leið sína í Kaplakrika náði sér þá í kaffibolla í rignunni og biðu spennt eftir að leikurinn myndi hefjast í seinni hálfleik og vonuðust eftir stórskemmtilegum síðari hálfleik...sem varð svo raunin!

Eftir sjö mínútna leik í síðari hálfleik kom fyrsta markið. Atli Guðnason gerði þá frábærlega, lék á nokkra leikmenn KA, hélt boltanum vel og lagði boltann snyrtilega inn á Ólaf Pál sem átti ekkert annað eftir að setja hann í netið framhjá Sandori Matus í marki KA sem varði oft á tíðum frábærlega. Staðan orðin 1-0 og því þurftu KA-menn að færa sig framar ætluðu þeir að næla sér í framlengingu eða jafnvel sigur í Krikanum.

Okkar menn óðu gjörsamlega í færum og annað markið kom á 68. mínútu þegar KA-menn skildu ekkert hvað þeir voru að gera, Matthías Vilhjálmsson þakkaði pent fyrir sig og skoraði auðvitað, fyrirliði af guðs náð. FH-ingar voru ekki hættir því á 75.mínútu skoraði Ólafur Páll sitt annað mark. Jón Ragnar, sem var nýkominn inná fyrir Gumma Sævars, tók þá langt innkast og eftir baráttu í teignum fékk Ólafur Páll boltann og lagði hann snyrtilega í netið, en boltinn átti þó viðkomu í varnarmanni. Lokatölur 3-0 í Krikanum og FH komið í undanúrslit Visa-bikars karla.

Hrósa ber Matthíasi Vilhjálmssyni fyrir leik sinn í kvöld; hann barðist af dugnaði, gaf góðar sendingar og skoraði gott mark sem má nánast segja um allt liðið, en þolinmæðin var til staðar hjá öllu liðinu. Einnig má hrósa Ólafi Pál og Bjarka Gunnlaugs. Ólafur Páll skoraði tvö mörk og þetta er fjórði leikurinn í röð sem Ólafur skorar í. Bjarki Bergmann kom inn í liðið og færði liðinu yfirvegun og Hafþór átti mjög góðan leik í miðju varnarinnar. Það lýsir kannski yfirburðum FH að FH átti 29 skot að marki KA, en gestirnir einungis sjö, FH fékk 13 hornspyrnug og KA einungis 5.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson