
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| FH - KA í 8-liða úrslitum Visa-bikarsins í kvöld | |
|
|
Einn leikur er í VISA-bikar karla í dag, en þá kemur fyrstu deildarlið KA í heimsókn í Kaplakrika. Þar mæta þeir Íslandsmeisturunum og heimamönnum í FH, en leikurinn hefst í fyrra fallinu, eða klukkan sex. Líklega er það vegna þess svo Akureyringar komist með flugvél heim, strax eftir leik. KA kom inn í keppnina í annari umferð. Þar sigruðu þeir granna sína í Draupni, 2-0, og í næstu umferð voru HK-menn bráð þeirra í stórfjörugum leik þar sem lokatölur urðu 3-2. Í 16-liða úrslitunum sigruðu þeir svo Grindavík í vítaspyrnukeppni og eru því komnir í 8-liða úrslitinn. FH hefur farið strembna leið í 8-liða úrslitin. Þeir unnu bikarmeistarana frá síðasta ári, Breiðablik, í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum og svo sigruðu þeir Keflavík, 3-2, í 16-liða úrslitunum. Fhingar.net verður að sjálfsögðu í Krikanum og mun koma með beina lýsingu, umfjöllun og einkunnir. 18.00 FH – KA TEXTINN ER TEKINN FRÁ SPORT.IS |