
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Umfj.: FH steinlá í Kaplakrika | |
|
|
FH mætti Stjörnunni í hörkuleik á sunnudag. Hér kemur síðbúin, en upplýsingarmikil umfjöllun um leikinn en vegna anna komust þeir sem vinna ekki að skrifa á síðuna. Margir voru í ferðalögum og sumir einfaldlega ekki í tölvufæri, biðjumst velvirðingar á þessu! En að leiknum sjálfum... FH-liðið byrjaði mjög vel og var það Ólafur Páll Snorrason sem kom þeim svörthvítu úr Hafnarfirði yfir á 20.mínútu. Eftir flott spil lék Ólafur Páll að endamörkum og vippaði boltanum yfir Bjarna Þórð Halldórsson, í marki Stjörnunnar og staðan orðin 1-0. FH-ingar réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik og fengu nokkur dauðafæri m.a. fyrirliðinn, Matthías Vilhjálmsson, en skallaði framhjá úr álitlegu færi inn í teignum. Torger Motland komst einnig í ágætis færi, en náði ekki að stýra boltanum nógu vel á markið. Það má með sanni segja að okkar menn hafi ekki mætt til leiks í seinni hálfleik. Stjörnumenn voru mikið ákveðnari í alla bolta og menn voru komnir með hausinn niður í bringu. Ekki skánaði ástandið þegar Gunnleifur Gunnleifsson fékk rautt spjald þegar hann tók Steinþór Freyr niður í teignum og Stjörnumenn fengu víti. Úr vítinu skoraði Halldór Orri Björnsson. Sjö mínútum síðar voru við lentir undir, Ellert Hreinsson skoraði þá eftir sendingu frá Steinþóri Frey. Okkar menn sóttu þá stíft, en náðum ekki að skora..áttum m.a. skot í slá og fleira, en Baldvin Sturluson bætti við einu marki í lokin og lokatölur 3-1. Byrjunarlið FH: Gunnleifur Vignir Gunnleifsson 6, Tommy Nielsen 6, Pétur Viðarsson (Gunnar Már Guðmundsson 46') 6, Torger Motland 6 (Gunnar Sigurðsson 68') 6, Björn Daníel Sverrisson 6, Matthías Vilhjálmsson 7, Atli Guðnason 7, Guðmundur Sævarsson 6 (Jón Ragnar Jónsson 77') 6, Atli Viðar Björnsson 6, Ólafur Páll Snorrason 6, Hjörtur Logi Valgarðsson 7. |