|
Lengjubikarinn: KA - FH 3-3 |
|
Jónas Ýmir Jónasson
Sun, 14. mars 2010 |
|
|
Meira um leikinn síðar. Frétt frá fotbolta.net KA 3 - 3 FH 1-0 Andri Fannar Stefánsson 1-1 Gunnar Már Guðmundsson (Víti) 1-2 Pétur Viðarsson 2-2 Andri Fannar Stefánsson 2-3 Atli Viðar Björnsson 3-3 Andri Fannar Stefánsson Rautt spjald: Dean Martin (KA)
KA og FH gerðu 3-3 jafntefli í A deild Lengjubikars karla í Boganum í dag. Andri Fannar Stefánsson fór á kostum hjá KA og skoraði þrennu en heimamenn voru manni færri í um 70 mínútur eftir að Dean Martin spilandi þjálfari þeirra fékk að líta rauða spjaldið. Andri Fannar kom KA yfir í leiknum þegar að hann spólaði sig í gegnum vörn FH og lagði boltann framhjá Gunnleifi Gunnleifssyni í markinu. Eftir um það bil tuttugu mínútur varði Dean Martin boltann með hendi á marklínu. Martin fékk að líta rauða spjaldið og dæmd var vítaspyrna sem Gunnar Már Guðmundsson skilaði í markið. FH-ingar létu kné fylgja kviði og komust yfir skömmu síðar þegar að Pétur Viðarsson skoraði með skalla eftir horn. KA lagði ekki árar í bát og Andri Fannar jafnaði fyrir leikhlé þegar að hann vann boltann á miðjunni og stakk vörn FH af áður en hann renndi boltanum í fjærhornið. Staðan var 2-2 í hálfleik en í síðari hálfleik sóttu FH-ingar þónokkuð enda manni fleiri. Þeir komust síðan yfir þegar að Atli Viðar Björnsson skoraði með föstu skoti eftir klafs í teignum. Margir héldu að FH-ingar myndu landa sigri í kjölfarið en Andri Fannar var á öðru máli og hann kórónaði stórleik sinn með því að ná þrennunni. Andri Fannar skoraði þá með skoti á lofti í fjærhornið, óverjandi fyrir Gunnleif í markinu. FH-ingar fengu færi til að tryggja sér sigurinn í lokin en KA hélt út og lokatölur 3-3 í fjörugum leik í Boganum. KA-menn geta vel við unað að ná 3-3 jafntefli gegn Íslandsmeisturum FH og sérstaklega í ljós þess að gestirnir voru manni fleiri í um það bil 70 mínútur. FH er með sjö stig eftir þrjá leiki eftir þessi úrslit en KA var þarna að ná í sitt fyrsta stig í Lengjubikarnum í ár.
|