|
Áhugalausir FHingar steinlágu fyrir Blikum |
|
fhingar@fhingar.net
Fös, 12. mars 2010 |
|
|
FH spilaði æfingaleik fyrr í kvöld gegn Breiðablik og endaði leikurinn 3-0 fyrir drengina úr Kópavogi. Verðskuldaður sigur í leik sem var aðalega spilaður til að sjá Torger Motland sem hefur verið til reynslu hjá FH undanfarna viku. FH liðið spilaði án leikmanna eins og Gunnleifs Gunnleifssonar og Matthíasar Vilhjálmssonar en við komum með smá umfjöllun úr leiknum síðar í kvöld. Þá munum við svara spurningunni, hvernig stóð Motland sig??? Það má einnig geta þess að Pétur Runólfsson sem spilað hefur með ÍBV síðustu ár kom inná í seinni hálfleik.
|