FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Mfl kvk ÍBV - FH: bein textalýsing
Anton Ingi Leifsson    Mið, 02. september 2009   

 Heimildamaður hafði þetta að segja: "þær fagna núna eins og vistmenn á kleppi hafi losnað úr spennitreyjuminna helst á vistmennina úr gaukshreiðrinu ....."

FH hafa sigrað á útivallarmörkum 2-2 og munu þær spila í Pepsi deildinni næsta sumar, frábær árangur hjá stelpunum og þjálfurunumJón Þóri Brandssyni og Örnu Steinsen.

FH hafa jafnað, 2 mínútur eru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en markið skoraði varamaðurinn Elísabet Guðmundsdóttir, en hún er einungis 16 ára gömul. Pepsi deildin er í augsýn!!!!

Ýtið á meira til að sjá fyrstu mín

 ÍBV virka stressaðar og halda boltanum illa.

 FH liðið á leikinn eftir markið og voru þær að gera skiptingu, útaf fór Sigrún Ella Einarsdóttir og inná kom Guðrún Björg Eggertsdóttir, 9 mínútur eftir, koma svo FH.

FH eru með vindinn í bakið í seinni hálfleik sem ætti að hjálpa þeim mikið en heyrst hefur að það sé mikill vindur í Eyjum.

 FH eru búnar að minnka muninn!!!!! Hanna Gústavsdóttir gerði það og var það 16.markið hennar í sumar ef mér skjátlast ekki, en markið kom á 57.mínútu, eftir hornspyrnu og eygja stelpurnar von.

 Staðan orðin 2-0 fyrir ÍBV. Róðurinn er orðinn þungur fyrir FH og þurfa þær að fara spila betur ef þær ætla sér upp um deild.

Það er kominn hálfleikur í Eyjum og er staðan 1-0 fyrir ÍBV. Stelpurnar þurfa þrátt fyrir það bara eitt mark og skulum við vona að þær geri það ! 

40 mínútur eru liðnar, ÍBV voru að eiga annað skot í slá en aðstæður á vellinum eru erfiðar því það er rigning, vindur og völlurinn því mjög blautur.

FH eru lentar undir eftir 28 mín en það var Berglind Arnardóttir fyrirliði FH sem skoraði sjálfsmark, 1-0 fyrir ÍBV en nú þarf FH að skora.

Eftir korter eru ÍBV búnar að vera betri, með meðal annars skot í slá en staðan er enn 0-0. Því miður höfum við ekki byrjunarliðið á hreinu. Muna að refresha á 5 minútna fresti.

Hér mun koma bein textalýsing, um leið og við heyrum frá okkar manni í eyjum látum við það beint inn hingað en það eru mörk, rauð spjöld og hættuleg færi. Fylgist með

 ÁFRAM FH!!!!

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson