FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

http://www.fhingar.net/web/components/com_gk3_photoslide/thumbs_big/216830FHNETJL2009_09_20_3.jpglink
http://www.fhingar.net/web/components/com_gk3_photoslide/thumbs_big/808620FHNETJL2009_09_20_48.jpglink
http://www.fhingar.net/web/components/com_gk3_photoslide/thumbs_big/804991may2011_100.jpglink
http://www.fhingar.net/web/components/com_gk3_photoslide/thumbs_big/14031328emil.jpglink

Ólafur Páll Snorrason gerir nýjan 2 ára samning við FH

Þá er það orðið staðfest að Ólafur Páll Snorrason hefur gert nýjan 2 ára samning við FH en þessi samningur hefur legið í loftinu í nokkurn tíma.  Óli Palli kom Lesa meira..

FH gerir samninga við unga leikmenn

Nýverið skrifuðu fjórir ungir og efnilegir leikmenn undir samninga við FH.Þetta eru eru þeir Aron Lloyd Green, Brynjar Ágeir Guðmundsson, Kristján Flóki Finnbogason og Viktor Smári Segatta.Knattspyrnudeild FH bindur miklar Lesa meira..

Gummi Sævars hættur í FH

Gummi hefur leikið allan sinn feril með FH og spilað 199 leiki og skorað 17 mörk. Það er ljóst að það verður mikill sjónarsviptir af þessum skemmtilega leikmanni sem verið hefur Lesa meira..

Fotbolti.net mótið og annað

Jæja þá fer FH liðið að spila á fullu fljótlega og því ekki úr vegi að skoða hvað sé framundan svo menn geti mætt og skoðað nýju mennina.Fotbolti.net mótið er að Lesa meira..
Ólafur Páll Snorrason gerir nýjan 2 ára samning við FH FH gerir samninga við unga leikmenn Gummi Sævars hættur í FH Fotbolti.net mótið  og annað
 
Getraunakvöld FH, föstudagskvöldið 10. febrúar
Sun, 05. febrúar 2012    Héðinn Ólafsson   
Föstudagskvöldið 10. febrúar verður getraunakvöld FH haldið í fyrsta skiptið.  Eins og nafnið gefur til kynna, er þetta haldið til að vekja athygli á getraunastarfi FH sem nýlega hefur verið endurvakið.  Einnig verður ýmislegt annað um að vera og ber þá helst að nefna spurningakeppni á milli þjálfara og leikmanna FH, en fyrir þjálfurum mun fara enginn annar en þjálfari meistaraflokks karla Heimir Guðjónsson, en fyrir leikmönnum fyrirliðinn Matthías Vilhjálmsson.  Það er alveg ljóst að þetta verður sögulegur viðburður sem enginn má missa af.  Getraunakvöldið mun fara fram í Sjónarhóli, glæsilegum veislusal okkar í krikanum, húsið  opnar klukkan 20:00  og í boði verða veitningar á sannkölluðu FH verði.
 


Nýtt tölvupósfang getrauna FH
Fim, 02. febrúar 2012    Héðinn Ólafsson   

Getraunastarf FH hefur fengið nýtt tölvupóstfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  Þannig geta þeir sem þegar hafa tippað hjá okkur og eru með kreditkortin á skrá hjá okkur, sent okkur tölvupóst með seðlunum, ef þeir ekki komast á laugardegi.  Við munum jafnt sem áður vera með opið í krikanum á laugardögum á milli 11 og 14 og hvetjum við sem flesta til að láta sjá sig.  Þeir sem ekki eru með kreditkortin á skrá hjá okkur og þeir sem vilja nota aðrar greiðsluleiðir, eru hvattir til að koma við hjá okkur á laugardögum.

 Föstudagskvöldið 10. febrúar verður mikið um að vera hjá okkur í krikanum þegar lið þjálfara mætir liði leikmanna í spurningarkeppni aldarinnar.  Endilega takið kvöldið frá, en nánari upplýsingar um dagskrá verður birt fljótlega.  Upphaflega stóð til að vera með þetta kvöld núna 3. febrúar, en því var frestað um viku vegna þess að meistaraflokkur er að spila á laugardag, en á frí um næstu helgi.

 

 

 


Hversu mikill FHingur ertu?
Fös, 20. janúar 2012    Árni Rúnar Karlsson   

Uppfinningamenn eru loksins búnir að þróa það sem við FHingar höfum lengri þráð. Já "hversu mikill fhingur ertu?" stikan er komin á markað. Við hér á fhingar.net höfum að sjálfsögðu fjárfest í einni slíkri.

Öllum FHingum er bent á að gera sér ferð upp í Kaplakrika um helgina og láta mæla sig , þannig er loksins hægt að finna út hver sé mesti FHingurinn!!

Sá sem mælist sem "mesti" FHingurinn verður verðlaunaður og fær 5 mín af frægð. Allt í boði FHingar.net

 


Úrslit áskorendakeppni FH Getrauna í viku 2
Mán, 16. janúar 2012    Héðinn Ólafsson   

Núna um helgina fór fram fyrsta áskorendakeppni getraunastarfs FH.  Ekki var um neina vinningsröð að ræða að þessu sinni, en úrslitin voru eftirfarandi: 

Ingvar Viktorsson 6 - 9 Bergþór Jónsson

Héðinn Ólafsson 7 - 6 Árni Rúnar Árnason

Úlfar Danílesson 9 - 8 Leifur Garðarsson

Steinar Stephensen 8 - 7 Ingvar G Jónsson

 Þórarinn Þórarinsson 5 - 9 Árni Björn Ómarsson

Þeir sem betur höfðu þessa vikuna munu svo skora á nýja FHinga og verður sú spá birt hér fljótlega.

Minnum enn á að við erum með opið í krikanum frá klukkan 11 til 14 alla laugardaga. 

 


Ólafur Páll Snorrason gerir nýjan 2 ára samning við FH
Mán, 09. janúar 2012    Jónas Ýmir Jónasson   

Þá er það orðið staðfest að Ólafur Páll Snorrason hefur gert nýjan 2 ára samning við FH en þessi samningur hefur legið í loftinu í nokkurn tíma.  Óli Palli kom fyrst til FH árið 2005 og varð íslandsmeistari með liðinnu árin 2005 og 2006.  Hann fór í Fjölni árið 2008 en kom síðan frá Val árið 2009 og varð íslandsmeisrari með liðinnu.  Hann hefur verið lykilmaður síðustu tveggja tímabila og fögnum við því að hann verður áfram hjá Fimleikafélaginu.

 Áfram FH!

 


Ásgeir Gunnar yfirgefur FH
Fim, 02. febrúar 2012    Árni Rúnar Karlsson   

Núna er orðið ljóst að Ásgeir Gunnar Ásgeirsson yfirgefur FH.

Ásgeir gekk til liðs við FH árið 2002 og hefur leikið 175 leiki fyrir FH og skorað 25 mörk. Ásgeir hefur verið svokallaður allt muligtman í FH liðinu en hann hefur leikið hinar ýmsu stöður. Ásgeiri þökkum við fyrir hans framlag til félgasins, titlana, samband hans við stuðningsmenn og óskum alls velfarnaðar í framtíðinni.

Takk fyrir okkur meistari!

 


Fyrsta stuðningsmannakvöld ársins á fimmtudagskvöld
Mán, 16. janúar 2012    Héðinn Ólafsson   

Fimmtudagskvöldið 19. janúar kl. 20:00 verður haldið fyrsta stuðningsmannakvöld ársins hjá Mafíunni.  Til stendur að kynna hugmyndir um breytingar hjá Mafíunni, en hugmyndir eru um að gera félagsskapinn formlegri með útgáfu félagsskírteina.  Þannig að það má líta á þetta sem "stofnfund" Mafíunnar.   Við  skorum við á alla þá sem áhuga hafa, að koma og gefa kost á sér til starfa fyrir Mafíuna.  Ef nógu margir gefa kost á sér verður kosið í stjórn Mafíunnar, en annars situr núverandi stjórn áfram.

 Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar mun koma og sitja fyrir svörum og hvetjum við alla þá sem hafa eitthvað við starf hans og stjórnarinnar að athuga, að mæta og koma sínu á framfæri.

  Við vonumst að sjálfsögðu eftir að sjá sem flesta, en á boðstólnum verður bjór á sama góða FH verðinu.  Áfram FH!

 


Getraunastarf FH - Áskorendakeppni
Fös, 13. janúar 2012    Héðinn Ólafsson   

Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að getraunastarf FH hefur verið endurvakið í Kaplakrika.  Alla laugardaga á milli klukkan 11 og 14 er opið í kaplakaffi (gamla sjónarhóli) og eru allir hvattir til að mæta, taka þátt og hitta félagana.

 Einnig hvetjum við alla til að taka frá föstudagskvöldið 3. febrúar, en þá verður getraunasamkvæmi í Sjónarhóli þar sem stefnt verður saman þjálfurum og leikmönnum FH í spurningakeppni þar sem sjálfur Hörður Magnússon (FH legend) verður spyrill.  Veitingar verða í boði á mjög vægu verði.

 Núna um helgina fer af stað áskorendakeppni sem spennandi verður að fylgjast með.  Hér að neðan  er spá fyrstu þátttakenda:

 

 


FH gerir samninga við unga leikmenn
Mán, 09. janúar 2012    Jónas Ýmir Jónasson   
Nýverið skrifuðu fjórir ungir og efnilegir leikmenn undir samninga við FH.
Þetta eru eru þeir Aron Lloyd Green, Brynjar Ágeir Guðmundsson, Kristján Flóki Finnbogason og Viktor Smári Segatta.
Knattspyrnudeild FH bindur miklar vonir við þessa leikmenn í framtíðinni en þeir urði allir íslandsmeistarar með FH í 2.Flokki síðasta sumar.  Kristján Flóki varð einnig norðurlandameistari með U-17 landsliði íslands síðasta sumar
 


Síða 1 af 69
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson