
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| 14 Guðmundur Sævarsson | |
|
![]() #14
Guðmundur Sævarsson Bakvörður |
Guðmundur Sævarsson
Fæddur
Hæð
Þyngd
Titlar með FH: Íslandsmeistari 2004, 2005, 2006, 2008, Bikarmeistari 2007
Guðmundur Sævarsson er alinn upp í FH, hann spilaði upp flesta yngri flokka ssem framherji og kom inní meistaraflokk sem slíkur. Hann spilaði fyrstu leiki með meistaraflokk aðeins 19 ára gamall og skoraði þá 2 mörk í 12 deildarleikjum. Árið 1998 spilaði hann nánast alla leiki í deildinni eða 16 og skoraði þá 5 mörk. Undir stjórn Magnúsar Pálssonar árið 1999 skoraði Guðmundur 4 mörk í 11 leikjum. Logi Ólafsson tók síðan við liðinu árið 2000 og sigraði FH 1.deildina en Guðmundur spilaði aðeins 3 leiki það tímabil og 6 árið 2001 en var aðalega notaður sem kantmaður og framherji. Guðmundur fékk þó fleiri tækifæri þegar að Sigurður Jónsson stýrði liðinu og spilaði alla 18 leikina í deildinni árið 2002 og skoraði í þeim 3 mörk.
Ólafur Jóhannesson tók síðan við liðinu árið 2003 og lék Guðmundur 14 leiki og skoraði 5 mörk samtals. Ein stærsta stund í ferli Gumma Sævars kom síðan í síðasta leiknum árið 2003 gegn KR í leik sem FHingar unnu 7 - 0 og gerði Gummi sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.
Árið 2004 byrjaði Gummi Sævars tímabilið á bekknum og hægri bakvörður í upphafi þess tímabils var Heimir Guðmundsson. Heimir hélt stöðu sinni en var rekin útaf í þriðja leik FH liðsins það ár og leysti Gummi hann af hólmi sem hægri bakvörður og stóð sig frábærlega og skoraði m.a. eitt mark í sigurleik gegn ÍBV. Guðmundur kláraði tímabilið sem hægri bakvörður og hefur haldið þessari stöðu síðan þá og hefur verið undanfarin 5 ár langbesti hægri bakvörðurinn á Íslandi. Hans stærsta stund í FH búningi var þegar að hann skoraði stórkostlegt sigurmark FH gegn Fylki þegar við urðum Íslandsmeistarar árið 2008.
Guðmundur hefur svo sannarlega stimplað sig inn sem ein mesta goðsögn í sögu FH liðsins.