ÍA9
FH7
Valur6
Stjarnan5
Keflavík4
KR4
Breiðablik4
Fram3
Selfoss3
Fylkir2
ÍBV1
Grindavík1

Næsti leikur

Pepsi-deild karla
20.05.2012 20:00
FH vs Breiðablik
Kaplakrikavöllur

Síðasti Leikur

Pepsi-deild karla
Selfoss 0 FH 1

Tweets

Fótbolti.net

FH-ingurinn Heiðar Bergur Jónsson
Héðinn Ólafsson    Fös, 20. maí 2011   
Heiðar B. Jónsson

Heiðar B. Jónsson

FH-ingurinn að þessu sinni er Heiðar Bergur Jónsson.  Við FH-ingar sem höfum komið á völlinn í yfir 20 ár vitum að Heiðar hefur mætt á bæði fótboltann og handboltann í áratugi.  Fer ekki mikið fyrir honum, en hann er þarna.


1) Af hverju FH?

Þeir eru flottari en Haukar.

 2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir.

FH - ÍA.  Litlabikarkeppnin á malarvellinum, vorleikur, vindur og mikið ryk.  Man ekki úrslitin.

 3) Segðu okkur frá eftirminnilegum leik.

FH - Grindavík á efri vellinum, 0 - 3 og tuttugu mínútur eftir, unnum 4 - 3

4) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna?

Matti Vill.  Líkur Alonso.

5) Hvert er eftirminnilegasta markið sem Fhingur hefur skorað?

Höddi Magg, stöngin, stöngin, út, inn á móti KR

6) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta?

Fyrsti Íslandsmeistaratitilinn og bikarmeistaratitillinn.  Tapið á móti Fylki 89.

7) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju?

Gylfa Sig. Sá Danski númer 28 í fyrrasumar.

8) Hverjir eru verstu/erfiðustu andstæðingar FH að þínu mati?

ÍA/Fylkir.

9) Hverju myndir þú breyta hjá FH?


Engu.

10) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar?

Daði

Viðar Hald - Óli Adólfs - Marsek - Tommi Nils

Jón Þorgrímur - Heimir Guð - Matti Vill

Allan Borgvardt - Tryggvi Guð

Höddi Magg


11) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi, og fylgistu með einhverjum öðrum íþróttum?


Liverpool.  Handboltanum og Formúlu 1

12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár?

Í baráttunni í þriðju umferð í undankeppni meistaradeildarinnar.

13) Hvað finnst þér um Fhingar.net?

Flottast stuðningsmannasíða Íslands (hef ekki séð aðrar).

14) Ef upphitunarþáttur FH Radio myndi byrja 1 klst fyrir leik, myndirðu hlusta á hann áður en þú færir á völlinn
?

15) Eitthvað að lokum?

Íslands og bikarmeistaratitlar í hús 2011

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson