ÍA9
FH7
Valur6
Stjarnan5
Keflavík4
KR4
Breiðablik4
Fram3
Selfoss3
Fylkir2
ÍBV1
Grindavík1

Næsti leikur

Pepsi-deild karla
20.05.2012 20:00
FH vs Breiðablik
Kaplakrikavöllur

Síðasti Leikur

Pepsi-deild karla
Selfoss 0 FH 1

Tweets

Fótbolti.net

FH-Ingurinn Dagfinnur Þorvarðasson
Jónas Ýmir Jónasson    Mið, 13. apríl 2011   

FH-ingurinn að þessu sinni er engin annar en eðal snillingurinn Dagfinnur Þorvarðasson.  Dagfinnur eða "Daffi" starfar sem háseti á Venusi og er einn dyggasti hlustandi FH Radio þegar hann er á sjó. Hann lætur sig ekki vanta á völlinn þegar hann er í landi og hefur hann verið meðlimur í Mafíuni frá upphafi.  Dagfinnur er FH-ingurinn! 

Af hverju FH? Eins og margur annar hafnfirðingurinn var maður sendur í knattspyrnuskóla FH á sínum yngri árum og þar sem maður var sóttur uppí  gamla skátaheimili þar sem maður var svo lítill að maður mátti ekki fara einn yfir göturnar. Eftir það var ekkert aftur snúið. Og ég á enn heftið sem Janus Guðlaugs gaf út á þeim tíma. Fór svo að æfa með með 7. flokki og tók alla yngri flokkan með FH mætti meira að segja á nokkrar æfingar með meistaraflokki á undirbúningstímabilinu þegar Logi Ólafs var að þjálfa enn hugurinn leytaði annað á þeim tíma og getan ekki til staðar hehehe.


2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir: Fyrsti FH leikurinn .... úffff þeir eru búnir að vera margir. Enn það er alltaf einn leikur sem ég mun aldrei gleyma FH vs Fylkir '89 þó svo þeir voru margir fyrir það.


3) Segðu okkur frá eftirminnilegum leik: Enn og aftur FH vs. Fylkir '89 . Stórsigurinn á móti Grindavík þó svo ég hafi ekki verið á leiknum sat um borð í Venusi bundinn við bryggju og fylgdist með á textavarpinu. Fylkis leikurinn uppí Árbæ þar TG fór á kostum með Mafíunni. Og við unnum KR 7-0 !


4) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna? Eigum við ekki bara að byrja á Hödda Magg maskína þar á ferð og svo er Sverrir Garðars alltaf flottur.


5) Hvert er eftirminnilegasta markið sem Fhingur hefur skorað? Það fyrsta sem mér dettur í hug er markið hans Söderlund á móti Blikunum, þvílíkur Slammer ...


6) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta? Besta stundin eru allir tittlarnir auðvitað og þarf ég að endurtaka það enn og aftur, Fylkis leikurinn ´89 er sú verst ég fór að gráta.


7) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju?  Klárlega vil ég sjá bróðir minn spila í FH treyjuni og börnin mín og alla þá sem hafa hjarta og getu til að spila fyrir FH. Engann núverandi Liverpool mann og engann sem heldur að hann sér stærri enn félagið.


8) Hverjir eru verstu/erfuðustu andstæðingar FH að þínu mati?  Sé nú ekki mikla ógn af neinu liði eins og en Keflavík og ÍA hafa alltaf verið erfiðir


9) Hverju myndir þú breyta hjá FH? Klúbburinn sjálfur er alltaf að verða sterkari og flottari á öllum vígstöðvum ég vil helst sjá mafíuna eflast og einhverja endurnýjun í henni það fara margir að detta á aldur þar hehehe

10) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar?  Þetta er erfitt þau nöfn sem koma fyrst upp í hugann er þegar titlarnir fóru að skila sér.  

                            Daði
Gummi Sævars - Sverrir - Tommy - Hjörtur
 
Atli Guðna - Heimir - Matti Vill - Emmi Hall
 
   Allan Borgvard - Höddi Magg

11) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi?
  Manchester United

12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár? Meistaradeildinni að spila með þeim bestu og orðið eitt sigursælasta lið landsins frá upphafi.

13) Hvað finnst þér um Fhingar.net? Flott síða þar er allt sem maður þarf að vita !

14) Ef upphitunarþáttur FH Radio myndi byrja 1 klst til 30 mín fyrir leik, myndirðu hlusta á hann á netinu áður en þú færir á völlinn? Fer eftir því hvort maður sé að fara með fjölskyldunni eða Mafíunni ef það er fjölsyldan þá væri maður með kveikt á útvarpinu ef maður væri að fara með Mafíunni þá væri maður að gera eitthvað allt annað hehehe !
 

15) Eitthvað að lokum?  Vil þakka ykkur strákunum fhingar.net fer vel unnið starf og vonandi heldur FH-Radio áfram þar sem Ýmir fer á kostum og gerir marga túrana útá sjó mun betri þar sem maður fær góða lýsingu af leikjunum og missir af ekki af neinu. Hvet alla til að vera duglega að mæta á völlinn í sumar. " Allt fyrir félagið" - Áfram FH .......

 

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson