FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

FH-Ingurinn Héðinn Ólafsson
Jónas Ýmir Jónasson    Lau, 29. maí 2010   

FH-Ingurinn að þessu sinni er engin annar en Héðinn Ólafsson.  Héðinn er ekki einungis FHingur heldur er hann líka stofnandi Köfunarskólans kafarinn.is Héðinn skartar einnig glæsilegu FH húðflúri á handlegg eins og má sjá hér á myndinni til hliðar. Héðinn Ólafsson er FH-Ingurinn

 

1) Af hverju FH?

Rétt eins og Grindvíkingar halda með sínu bæjarliði og Keflvíkingar með sínu, þá held ég með mínu.   Það er aðeins eitt lið í Hafnarfirði.

 2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir.

Þetta var á þeim tíma sem Höddi Magg var upp á sitt besta og við vorum ekki að gera stóra hluti í boltanum.  Á þessum tíma voru menn þakklátir fyrir allt sem við unnum, en núna er maður hundóánægður með allt sem við vinnum ekki.  Kröfurnar eru klárlega orðnar miklu meiri eftir velgengni síðustu ára.

 3) Segðu okkur frá eftirminnilegum leik.

Árið 1994 skoðaði ég leikjaplanið fyrir sumarið og pantaði sumarbústað í viku fyrir fjölskylduna þar sem ég sá gat í töflunni.  Seinna var svo settur inn í gatið evrópuleikur geng Linfiled frá Belfast á heimavelli sem ég þá missti af.  Á þeim leik, sem FH vann 1 - 0 (Höddi Magg) var dreginn út einn stuðningsmaður sem fékk að fara með liðinu á útileikinn og eins og sanngjarnt var, þá vann ég þá ferð :-)

Þetta var mjög góð ferð í flesta staði nema hvað leikurinn tapaðist 3 - 1 þar sem Drazen Podunavac skoraði mark FH.  Þessi ferð og þessi leikur er mín eftirminnilegasta upplifun með FH.

4) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna?

Í liðinu í dag held ég mest upp á Atla Viðar, en einnig hef ég verið mikill aðdáandi Tommy í vörninni, þó svo að kallinn hafi ekki byrjað þetta tímabil vel.  Það er reyndar hægt að segja það um allt liðið.  Svo verð ég að nefna Matta Vill svona svo hann fái að vera með. :-)

5) Hvert er eftirminnilegasta markið sem Fhingur hefur skorað?


Mark sem Jón Erling skoraði gegn KR í vesturbænum í leik sem KR átti með öllu.  Við lágum í vörn allan leikinn Jón Erling skoraði úr einu sókn FH á u.þ.b. 85. mínútu og við unnum 1 - 0.  Man ekki hvaða ár þetta var, en ég er ekki frá því að þetta hafi verið einn af fáum sigrum þetta árið og að við höfum fallið.

6) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta?

Besta stundin er klárlega fyrsti Íslandsmeistaratitilinn.  Versta stundin jafn örugglega þegar við töpuðum fyrir Fylki á heimavelli 1989 og misstum af titlinum norður fyrir heiðar.

7) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju?

Davíð Þór Viðarsson.  Það vantar hann aftur á miðjuna.  Allir velkomnir í FH :-)

8) Hverjir eru verstu/erfiðustu andstæðingar FH að þínu mati?

Klárlega Keflavík síðustu ár, það þarf ekki að ræða það meira.

9) Hverju myndir þú breyta hjá FH?


Engu.  Eins og gengið hefur verið síðustu ár þá er ekki rétt að breyta neinu.  Frábært lið, stórkostlegir stuðningsmenn og góð stjórn og skipulag.

10) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar?


Úff þessi er erfiður, hendi hérna samt saman einu liði.

Stefán Arnarson
Petr Mrazek
Tommy Nilsen
Auðunn Helgason
Björn Jónsson
Emil Hallfreðsson
Davíð Þór Viðarsson
Atli Guðna
Andri Marteinsson
Höddi Magg
Allan Borgvardt

11) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi, og fylgistu með einhverjum öðrum íþróttum?


Ég er Liverpool maður.  Ég fylgist með öllum deildum hjá Fimleikafélaginu.

12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár?


Stórveldi í öllum deildum félagsins og með bestu umgjörð og félagssvæði allra félaga á Íslandi og þó víðar væri leitað.

13) Hvað finnst þér um Fhingar.net?


Frábær vefur!  Þið eigið mikið hrós skilið fyrir það sem þið eruð að gera fyrir félagið.  Mikil vinna og oft vanmetin.

14) Ef upphitunarþáttur FH Radio myndi byrja 1 klst fyrir leik, myndirðu hlusta á hann áður en þú færir á völlinn
?

Ekki spurning!


15) Eitthvað að lokum?


Ég vil endilega hvetja stuðningsmenn FH að mæta meira á leikina í hvíta litnum og taka virkari þátt í leiknum,  Það er ekkert óvirðulegt við að sleppa sér smá á fótboltaleik.  Áfram FH!

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson