|
Gunnar Bessi Þórisson er FHingurinn að þessu sinni en hann hefur alla tíð verið duglegur að mæta á völlinn og styðja hetjurnar okkar. Hann hefur ekki bara stutt FH, æft með FH heldur hefur hann einnig þjálfað í yngri flokkum félagsins. Gunnar Bessi er FHingurinn.
1) Af hverju FH? Það kom eiginlega ekkert annað til greina. Þegar ég var krakki bjó ég í norðurbænum sem var á þeim tíma mikið FH svæði. Auk þess var pabbi minn stuðningsmaður FH og það hjálpaði auðvitað mikið til. 2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir. Ég man eftir því að fara reglulega á völlinn með pabba þegar ég var krakki. Ætli það hafi verið 1983-1984. Það sem stendur uppúr í minningunni eru Góa karamellurnar sem ég fékk að kaupa í sjoppunni. 3) Segðu okkur frá eftirminnilegum leik. Það er erfitt að velja einn leik þar sem þeir eru svo margir eftirminnilegir á síðustu árum. 7-0 flengingin er náttúrulega ofarlega í huga FH-inga sem og leikirnir sem tryggðu okkur titlana 2004 og 2008. 4) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna? Af núverandi leikmönnum þá er Matti Villa í miklu uppáhaldi. Hann er leikmaður sem gaman er að horfa á. Hann gerir allt auðveldlega sem aðrir eiga í mestu vandræðum með. Fyrir utan það þá var Ingi Björn Albertsson í uppáhaldi. Hann er frændi minn! 5) Hvert er eftirminnilegasta markið sem Fhingur hefur skorað? Allan Borgvardt með hælnum í Grindavík 6) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta? Bestu stundirnar eru klárlega á Akureyri 2004 og í Árbænum 2008. Þær verstu eru án efa 1989 þegar við töpuðum titlinum og tapið gegn Val í Krikanum 2007 7) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju? Ég vil gjarnan sjá FH-ingana sem eru í atvinnumennsku koma heim. Leikmenn eins og Hannes, Ármann Smára og Viðarssynina. Ég hef heldur ekkert á móti því að sjá hinn eina sanna Allan í fallegu FH treyjunni aftur. Á meðan leikmenn eru nægilega góðir og eru tilbúnir til að leggja sig fram þá eru allir velkomnir í FH. Nei annars, Valur Fannar. Ég vil ekki fá hann í FH. 8) Hverjir eru verstu/erfuðustu andstæðingar FH að þínu mati? Keflavík, við höfum átt í miklu basil við þá undanfarin ár. 9) Hverju myndir þú breyta hjá FH? Þegar við höfum unnið 6 stóra titla á síðustu 6 árum þá þarf engu að breyta. 10) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar? Þrátt fyrir að FH hafi ekki safnað titlum á árum áður þá hafa fantagóðir fótboltamenn leikið með félaginu Stefán Arnarson (gk) Hilmar Björnsson (DR) Óli Kristjáns (DL) Ólafur Adólfsson (DC) Björn Jónsson (DC) Þórhallur Víkingsson (MR) Arnar Viðarsson (ML) Hallsteinn Arnarson (MC) Andri Marteinsson (MC) Höddi Magg (FC) Ingi Björn Albertsson Bekkur Halldór Halldórsson Viðar Halldórsson Hrafnkell Kristjánsson Guðmundur Valur Sigurðsson Daníel Pétursson 11) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi? Manchester United 12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár? Ég vona að eftir 10 ár verðum við komnir með aðra stjörnu á búninginn og verðum á þeim stað sem við erum í dag. Í titilbaráttu! 13) Hvað finnst þér um Fhingar.net? Síðan er frábær og verið vaxandi að undanförnu. Ég fer á hana daglega og kíki á spjallið. 14) Ef upphitunarþáttur FH Radio myndi byrja 1 klst til 30 mín fyrir leik, myndirðu hlusta á hann á netinu áður en þú færir á völlinn? Ég myndi án efa nýta mér það oft. |