
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| FH-ingurinn Bjarni Jóhannsson | |
|
![]() Bjarni Jóhannsson Bjarni Jóhannsson er FH-ingurinn............ 1) Af hverju FH? Eftir að hafa sökum ungs aldurs æft fótbolta með hinu liðinu í Hafnarfirði þá var ég drifinn með á æfingu hjá FH,ef ég man rétt þá var það Ófeigur(Silfurrefurinn) sem tók mig með sér upp á Kaplakrika á æfingu hjá Úlfari Dan og eftir það var ekki aftur snúið,vil reyndar meina að sú staðreynd að hafa byrjað minn knattspyrnuferil hjá Haukum hafi orðið til þess að ég komst ekki í meistaraflokk FH,enda skorti mig alla grunnþjálfun þó klárlega hafi getan verið til staðar..væri án vafa goðsögn í knattspyrnusögunni ef ég hefði byrjað í FH strax í 6.flokki.
2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir og segðu okkur frá eftirminnilegum leik. FH-Fram 5-1 á Kaplakrikavelli árið 1982 minnir mig að það hafi verið,það er mín fyrsta minning frá leik með FH. 7-0 á móti KR 2003(þarfnast ekki frekari útskýringar),Akureyri 2004 og svo var fínt að "kvitta fyrir" fyrir Kidda Tom-hryllinginn frá 1989 upp í Árbæ í fyrra,erfitt að toppa slíka spennu og dramatík eins þá. 3) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna? Vill fá að nefna fimm,þeir fyrstu af mörgum sem komu upp í hugann eru Sverrir Garðars,Daði Lár,Gummi Sævars,Alan Borgvard og svo að sjálfsögðu TG.. 4) Hvert er eftirminnilegasta markið sem Fhingur hefur skorað? Eitt mark kemur strax upp í hugann,ég gleymi aldrei marki sem Höddi Magg skoraði á móti KR á Kapla 1991,þegar hann sólaði allt Kr liðið upp úr skónum og smellti boltanum í stöngina og svo hina stöngina og þaðan hrökk boltinn út í teig og auðvitað var hann sjálfur mættur til að taka frákastið og skoraði...ógleymanlegt,annars koma mörg glæsileg mörk upp í hugann,man líka óljóst eftir marki sem Viddi Halldórs skoraði úr aukaspyrnu lengst utan af kanti,það var líka svakalegt mark.. 5) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta? Titlarnir 2004 og 2008 og svo auðvitað 7-0 6) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju? Væri í framtíðini til í að sjá Alex Birgi frænda minn og son minn Oliver Elí í búning Fimleikafélagsins,myndi ekki vilja sjá Val Fannar(Fylkir),Tryggva Bjarna(Stjörnunni) eða e-hverja aðra þekkta ofbeldismenn úr deildinni í búningnum enda slíkir leikmenn ekki þess verðir. 7) Hverjir eru verstu andstæðingar FH að þínu mati? KR er augljóslega þægilegasti andstæðingurinn,en sá erfiðast er án nokkurs vafa næstbesta liðið í Hafnarfirði....varalið FH. 8) Hverju myndir þú breyta hjá FH? Er ánægður með þá stefnu sem hefur verið rekinn undanfarin ár,vissulega er hægt að týna hitt og þetta til sem betur má fara en heilt yfir þá hljóta menn að vera að gera e-ð rétt því til sönnunar er hægt að benda á árangur í öllum flokkum síðustu ár,vona bara að okkur beri gæfa til að vera áfram litli "sveitaklúbburinn" og að ungir og efnilegir leikmenn haldi áfram að fá sénsinn hjá Heimi,er þeirrar skoðunar að hátt hlutfall uppalinna leikmanna eigi stóran þátt í þeim árangri sem meistaraflokkur karla hefur náð síðustu ár. 9) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar? Draumaliðið mitt er að meirihluta skipað uppöldum leikmönnum og það þarf heldur ekki að koma mikið á óvart að margir eru úr hinu magnaða "Meistaraliði" FH sem er búið að þurrka upp allar bikarahillur Reykjavíkurliðanna sl.6 ár. Daði Lárusson.(f) Gummi Sævars Sverrir Garðars Tommy Nielsen Auðunn Helgason Atli Guðnason Heimir Guðjóns Matti Villa Tryggvi Guð(TG) Höddi Magg Alan Borgvard varamenn:Úlfar Dan(m) Davíð Þór Atli Viðar Emil Hallfreðs Ásgeir Gunnar Viddi Halldórs Pálmi Jónsson 10) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi? Uppáhald liði mitt í Ensku-deildini er Tottenham Hotspurs og Barca á Spáni..
11) Ef upphitunarþáttur FH Radio myndi byrja 1 klst til 30 mín fyrir leik, myndirðu hlusta á hann á netinu áður en þú færir á völlinn? Eflaust myndi ég gera það stundum,amk er ég ánægður með framtakið og vonandi verður áframhald á útsendingum Radíó-FH um ókominn ár!! 12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár? Eftir 10 ár verður Fimleikafélag Hafnarfjarðar nýbúið að hampa sínum 15 Íslandsmeistaratitli og 11 Bikarmeistaratitli,einnig verður Hafnarfjarðar-stórveldið búið að spila nokkra leiki í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og síðar sama keppnistímabil þá verður þrennan fullkomnuð það tímabilið þegar við sigrum Meistaradeildina með fáheyrðum yfirburðum;)
|