FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

FH-ingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson
Steinþór Kristinsson    Sun, 16. ágúst 2009   
Rúnar Sigurður Sigurjónsson

Rúnar Sigurður Sigurjónsson

Það er orðið löngu tímabært að rifja upp skemmtilegan lið hér á www.fhingar.net en það er FH-ingurinn sem að þessu sinni er engin annar en Rúnar Sigurður Sigurjónsson en sumir þekkja hann undir nafninu russi á FH spjallinu.  Rúnar hefur farið á nánast hvern einasta FH leik í meira en 25 ár og er virkur meðlimur í Mafíunni og lætur ávallt vel í sér heyra á leikjum.  Rúnar er einnig "Keeper Of The Sword" og ósjaldan heyrast orðin "By The Power Of Kaplakriki" þegar sverðið er tekið úr slíðrinu.  Rúnar er FH-ingurinn
 
 
 
1) Af hverju FH?
Ég ólst upp í Norðurbænum og það var eina sem kom til greina. Fannst alltaf meiri stemmning í kringum FH þó þeir hafi verið í bölvanlegu basli þessi þar,  svo var fótboltaskóli FH og kennsluheftinn frá Janusi Guðlaugssyni eitthvað sem heillaði mann alveg, held meira að segja að þetta sé enn til hérna í blárri möppu.

2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir.
Ætli það hafi ekki verið með Andrési frænda mínum í kringum 1982 eða 1983, man ekki við hverja. Eftir það labbaði maður oft á leiki frá Breiðvanginum á leiki. Enn fyrsti leikurinn sem ég man eftir var á móti Fram og minnir mig að hann hafi nú farið 0-6 fyrir þá, ekki beint gæða minning.

3) Segðu okkur frá eftirminnilegum leik.

Þeir eru margir en held að það sé varla hægt að gleyma 19 september 2004 þó það sé klisja, reyndar mun ég líka seint gleyma leiknum á móti Breiðablik í ár sem við unnum 2-3 eftir að hafa lent 2-0 undir.

4) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna?
Höddi Magg var auðvitað hetjan á yngri árum, einfaldlega af því hann var funheitur og sískorandi. Í dag er það Tommy Nielsen, einfaldlega af því hann batnar bara og er 100% leikmaður

5) Hvert er eftirminnilegasta markið sem skorað hefur verið í Krikanum?
Þau eru öll góð, ég geri ekki upp á milli þeirra.

6) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta?
Besta: 19 sept 2004, þarfnast ekki útskýringar - Versta: Þegar við töpuðum fyrir Val 2007 í Kaplakríka, það var svartnæti

7) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju?
Væri ekki leiðinlegt að fá Fernando Torres í treyjuna, vil aldrei sjá Helga Sig eða slíka trommuheila í FH-búning

8) Hverjir eru verstu andstæðingar FH að þínu mati?

Verstu andstæðingarnir eru við sjálfir, liðið þarf að hafa hausinn auðvitað í lagi og þá gengur þetta vel. En það lið sem hata mest en hafa ekki verið svo vondir andstæðingar er Valur, fáir klúbbar sem mér er eins ílla við.

9) Hverju myndir þú breyta hjá FH?
Mér sýnist þetta vera á þokkalega góðri leið, væri samt til í að sjá einhverjar tilraunir til að berja stuðningsmennina betur saman, eins og til dæmis bjóða uppá aðstöðu í Krikanum fyrir leiki og svona, þar væri hægt að hafa hresst og ódyrt BBQ fyrir alla leiki og sprell. Ekki væri verra að möguleiki væri á öli í leiðinni til að tryggja vissa aðila á staðinn.

10) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar?
Mark: Daði Lár, Vörn: Gummi Sævars, Tommy Nilsen, Sverri Garðars, Óli Jóh, Miðja: Davið V, Heimir Guðjóns, Matti Vil, Ásgeir Gunnar, Sókn; Atli Guðna, Allan Bogvard

11) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi?
Leeds er liðið, en svo er ég líka laumu Poolari

12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár?
Á toppnum, með sterka og góða yngri flokka og bullandi bjartsýni og skynsemi í öllum andlitum.

Kv
Rúnar Sig
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson