FH-ingurinn Linda Sigurjónsdóttir er FH-ingurinn. Kynning - starf Linda er kona Heiðars, söngvara Botnleðju og Hafnarfjarðarmafíunnar.
1) Af hverju FH? Já.. á ég að gera langa sögu stutta? Stelpa hitti strák í Diskókeilu í Öskjuhlíð. Áfram FH! 2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir. Fyrsti leikurinn í fóboltanum var í Krikanum árið 2000. Ég man ekki við hvern FH var að spila en ég man að ég var rosalega hissa á því hversu lítið heyrðist í stuðningsmönnum FH. Það er liðin tíð eins og allir vita. 3) Segðu okkur frá eftirminnilegum leik. Þeir eru margir en eftirminnilegasti leikurinn minn er þegar við unnum ÍBV í Eyjum árið 2003. En það er kannski aðallega vegna þess að ég hafði aldrei komið til Vestmannaeyja áður. 4) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna? Ég er uppalin i Reykjavík þannig að ég veit lítið um hverjir hafa spilað í fótbolta fyrir FH í gegnum tíðina. Mér finnst allt liðið hafa staðið sig mjög vel og alltaf vera að bæta sig. Ef ég þarf að velja einhvern einn leikmann þá finnst mér við hæfi að velja Allan. Hann var góður leikmaður og hans verður sárt saknað. 5) Hvert er eftirminnilegasta markið sem skorað hefur verið í Krikanum? Eitthvað af 7-up mörkunum heimsfrægu 6) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta? Akureyri án efa. Rútuferðin, barinn, torgið, gangan að vellinum, leikurinn og að sjá FH taka við bikarnum 2004. Varla hægt að toppa þessa ferð. Versta er í bikarleiknum gegn Fram 2005 þegar þeir settu annað markið og jöfnuðu. Vægar hjartsláttartruflanir... 7) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju? Auðvitað væri gaman að sjá Eið í FH treyju. En alls ekki í FH treyju..? Það er ákveðinn markmaður í deildinni. Ég þori samt eiginlega ekki að segja hver það er. Ég vil ekki lenda í neinu veseni næst þegar ég fer til Grindarvíkur. Úbbs !! 8) Hverjir eru verstu andstæðingar FH að þínu mati? Það er Fram. Okkur hefur gengið illa að vinna þá og þá sérstaklega í Laugardalnum. 9) Hverju myndir þú breyta hjá FH? Ég þekki innra skipulag þeirra ekki nógu mikið til að dæma það. Ég hef heyrt að það þurfi að bæta æfingarsvæði og fjölga þjálfurum í yngri flokkunum en það þurfa öll lið að gera. Ég vona bara að félagið skipuleggji til framtíðar og haldi vel utan um yngri flokkana því þar liggur framtíðin. 10) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar? Þetta er erfitt. Að öðrum ólöstuðum myndi ég stilla svona upp.. Daði Gummi S. - Auðun – Tommy - Freysi Heimir – Ásgeir Jónsi Emmi Allan - Tryggvi 11) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi? Ég er búin að halda með Manchester United síðan ég var krakki en það byrjaði aðallega vegna þess að pabbi hélt svo mikið upp á Liverpool og honum fannst Ian Rush vera yfirburðarmaður á vellinum. (geisp!) Ég afneitaði Man U hins vegar í smá tíma þegar ég frétti að Alan Smith væri að koma í félagið. Ég gat ekki einu sinni horft á hann spila með Leeds þar sem ég þoldi hann ekki. Það var endalaust vesen á honum! Ég er samt búin að taka hann í sátt núna enda er hann búinn að standa sig mjög vel hjá M.U. og Rooney eiginlega tekin við sem skaphundur liðsins. 12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár? Í Hafnarfirði ... is that a trick question? Ef haldið er rétt á spilunum verður FH í toppbáráttunni enda á félagið marga mjög efnilega fótboltamenn sem verða komnir í liðið þá. En við uppskerum eins og við sáum þannig að það fer algjörlega eftir því hvað við gerum fyrir yngri flokkana og félagið næstu tíu árin. |