Fös 03.júl 2009
Einkunnir leikmanna gegn Val
Hér að neðan eru einkunnir hjá FHingum eftir þennan stórkostlega 0 - 5 sigur á Val. Nefndin valdi Atla Viðar mann leiksins.

FH (4-3-3)
Daði Lárusson 8
Guðmundur Sævarsson 8
Freyr Bjarnason 7
Tommy Nielsen 7 (78., Sverrir Garðarsson)
Pétur Viðarsson 9
Davíð Þór Viðarsson 8
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 8 (82., Hákon Atli Hallfreðsson)
Matthías Vilhjálmsson 7
Atli Guðnason 9
Atli Viðar Björnsson 9
Tryggvi Guðmundsson 8 (73., Matthías Guðmundsson)





Íslenskar getraunir
Fös 03.júl 2009
FH gjörsigraði Val
FH sigraði Val örruglega í kvöld með fimm mörkum gegn engu. Leikurinn var yfirspilun FH-inga allan tímann og áttu Valsmenn ekki séns, sérstaklega í þeim fyrri.
MEIRA


Fim 02.júl 2009
Bein textalýsing: Valur - FH
Ýttu á "MEIRA" til að sjá beina lýsingu af leiknum.
MEIRA
Fim 02.júl 2009
Pepsi Deildin: Valur - FH - Upphitun
FHingar leika sinn ellefta leik í deildinni í kvöld þegar þeir mæta Valsmönnum á Hlíðarenda

Valur - FH

Vodafonevöllurinn
kl 20:00
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Beint á Stöð 2 Sport
Rúta frá Dillon Sportbar, verð kr 500
MEIRA


Fim 02.júl 2009
Sverrir Garðarsson í hópnum í kvöld
Þær fréttir voru að berast að Sverrir Garðarsson verður í fyrsta skipti í leikmannahóp FH á þessu tímabili gegn Val í kvöld. Svo sannarleg gleðitíðinni fyrir alla FHinga.

Syngjum..............................

Sverrir Garðarsson
lag: Go west
Sverrir, Sverrir Garðarsson.
Sverrir, Sverrir Garðarsson.
Sverrir, Sverrir Garðarsson.
Sverrir, Sverrir Garðarsson.
Mið 01.júl 2009
Willum Þór Þórssyni sagt upp störfum sem þjálfara Vals(Staðfest)
kl: 13:02 - Samkvæmt heimildum okkar þá hefur Willum Þór Þórsson verið rekinn sem þjálfari Vals. Valsmenn hafa þó ekki staðfest þetta en áreiðanlegar heimildir okkar segja að Willum sé á leiðinni að kveðja leikmenn liðsins en fhingar.net vora fyrsti miðilinn sem greindi frá þessu.

Atli Eðvaldsson er talinn vera þeirra fyrsti kostur, aðrir kostir eru Siggi Jóns og Eyjólfur Sverrisson

Eins og allir FHingar vita þá keppa Valur og FH annað kvöld.




Þri 30.jún 2009
Brjáluð stemmning á fimmtudag! Rúta?
Það er stórleikur í Pepsi-Deildinni á fimmtudag þegar FHingar mæta Völsurum. Stuðningsmenn FH ætla að hittast á Dillon Sportbar fyrir leik og ætlum við að reyna að hafa rútu, ef næg þáttaka næst.

Verð í rútu er 500 kr sem greiðist í reiðufé en ATH við pöntum ekki rútu nema að næg þátttaka muni nást. Stefnan er að leggja snemma af stað og magnaða stemmningu. Getum við endurtekið stemmninguna á Hlíðarenda 2005??? Það veltur á ÞÉR

Sýnum leikmönnum, þjálfurum og stjórn liðsins hverjir eru bestu stuðningsmenn landsins.

Þeir sem ætla í rútu skrá sig með því að senda tölvupóst á

jonasymir@gmail.com




Adidas
Þri 30.jún 2009
15 laus sæti til Eyja
Það eru 15 sæti til sölu með FH liðinu til Eyja nk. sunnudag þar sem FH spila í bikarnum gegn ÍBV. Þeir sem hafa áhuga á að tryggja sér sæti hafi samband við Pétur Ó. Stephensen í síma 894 0040. Verð kr 15.000



Þri 30.jún 2009
Einkunnir leikmanna gegn IBV
Nefndin okkar hefur skilað af sér einkunum leikmanna gegn ÍBV.


MEIRA
Mán 29.jún 2009
Umfjöllun: Í.B.V. - FH
Fhingar gerðu góða ferð til eyja í gærkvöldi þegar þeir sóttu ÍBV heim.
MEIRA


Mán 29.jún 2009
Framkvæmdarstjóri KSÍ svarar kvörtun ÍBV varðandi dómara
Hér að neðan er svar Þóris Hákonarsonar, Framkvæmdarstjóra KSÍ þar sem hann svarar athugasemdum forráðamanna knattspyrnudeildar ÍBV en þeir voru ósáttir við ferðatilhögun dómara í gær. Dómaratríóið ásamt eftirlitsdómara ferðuðust með leiguflugvél FH liðsins í gær en ÍBV segjast þó ekki kenna dómurunum um tapið, þó þeir hafi verið ósáttir við lykilákvarðanir þeirra í leiknum.

MEIRA
Mán 29.jún 2009
Hjörtur Logi ekki alvarlega meiddur
Hjörtur Logi Valgarðsson sem þurfti að fara af velli gegn ÍBV á 40 mínútu í gær reyndist ekki alvarlega meiddur við skoðun í dag. Logi var tæklaður gróflega á hnéð af Andra Ólafsyni fyrirliða Í.B.V. sem fékk einungis gult spjald fyrir. Við heyrðum í Loga eftir skoðun og var honum létt "Þetta er svona vika til 10 dagar býst ég við" sagði Hjörtur Logi Valgarðsson




Sun 28.jún 2009
FH sigur í Vestmanneyjum
FH unnu í kvöld glæstan 0-3 sigur á ÍBV í Eyjum. Atli Viðar Björnsson, Matthías Vilhjálmsson og tannlæknirinn, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skoruðu fyrir Fimleikafélagið og eru FH-ingar því enn á toppin með fimm stiga forystu á Stjörnuna eftir níu leiki.

Umfjöllun kemur á morgunn.
MEIRA
Sun 28.jún 2009
FH - ÍBV í kvöld
FH mætir í kvöld liði ÍBV í Vestmanneyjum. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og munum við gera honum góð skil eftir leikinn. ÁFRAM FH!!
MEIRA


Fös 26.jún 2009
Matti Vill.: Frammistaðan var góð
Matthías Vilhjálmsson, framherji FH, var vitanlega sáttur eftir leik FH gegn Fram þar sem Hafnarfjarðaliðið fór með 2-0 sigur. Matthías spilaði vel og gerði varnarmönnum Framara oft lífið leitt með frábærri tækni sinni.
MEIRA
Fös 26.jún 2009
Einkunnir leikmanna gegn Fram
Ein af þeim nýjungum sem verða á nýju heimasíðunni verða einkunnir leikmanna. Við höfum fundið nokkra aðila til að gefa sitt mat á frammistöðu leikmanna í leikjunum og er meðaltal þeirra birt hér. Nánari útskýringar á einkunnagjöf verða gerð síðar. Vonum að menn taki vel í þessa nýbreytni.

Fram–FH 0 - 2
0-1 Tryggvi Guðmundsson 49
0-2 Tryggvi Guðmundsson 51

Skot (á mark): 8-22 (2-15)


MEIRA


Fös 26.jún 2009
Umfjöllun: Svart-hvítur sigur í Laugardalnum
FH sigraði í kvöld lið Fram. Tryggvi Guðmundsson var á skotsónnum fyrir FH og kom vel inn í liðið. FH er í efsta sæti með 24 stgi - en Fram í því áttunda með átta stig. Leikurinn var fjörugur í fyrri hálfleik, en síðari hálfleikurinn var afleitur þrátt fyrir tvo mörk. Leikurinn var liður í 13.umferð - en var flýtt vegna Evrópuleikja liðanna.
MEIRA
Fös 26.jún 2009
"Þið voruð frábær í stúkunni"
Ég heyrði aðeins í Alexander Toft Soderlund og honum leið ágætlega en Soderlund meiddist mjög snemma í leiknum. Hann missti andardráttinn algerlega um stund þegar atvikið gerðist í leiknum. Hann fékk mikið högg á bakið og var þónokkra stund að ná andanum á nýjan leik. Hann fer í myndatöku á morgun en sagðist þó líða mjög vel. Hann vildi koma því á framfæri að stuðningurinn úr stúkunni hafi verið stórkostlegur í leiknum og hvatti alla til að halda áfram að styðja svona vel á bakvið liðið.



Fim 25.jún 2009
Fram - FH 0-2
FH sigraði Fram á útivelli með tveimum mörkum gegn engu í öruggum sigri Fimleikapilta gegn frömmurum. Tryggvi Guðmundsson skoraði bæði mörk FH í síðari hálfleik.
Fim 25.jún 2009
Nýir stjórnendur á FHingar.net
Þeir Steinþór Kristinsson og Jónas Ýmir Jónasson hafa nú formlega tekið við vefnum af þeim Atla Rafni og Jóni Óskarssyni sem hafa unnið frábært starf síðustu tímabil. Vefurinn er búin að vera í loftinu síðan 2002 en þeir Viðar Hrafn Steingrímsson og Númi Arnarson eru upphaflegir stofnendur www.fhingar.net

Vinna við glænýjan og mikið endurbættann vef er þegar farin í gang og biðjum við um þolinmæði gagnvart því. Töluverður tími á eftir að fara í að búa til nýja fhingar.net en við munum uppfæra þessa síðu eins vel og hægt er þangað til. Þessi vefur er fyrir löngu komin til ára sinna og er í raun grimmdarlegt að þurfa að vinna á hann miðað við þá tækni sem er komin á nýrri vefsíður. Markmiðið er að halda efni upphaflegs vefs og bæta við öllu sem er á www.fhmafian.net og sameina síðurnar tvær.

Við höfum fengið til liðs við okkur Anton Inga Leifsson sem er Ritstjóri hjá www.boltinn.is en hann hefur einnig verið að skrifa fréttir á fh.is. Anton er FHingur í húð og hár en við höfum einnig boðið öðrum FHing að ganga til liðs við okkur og vonandi verður sú rauninn að við verðum amk með 4-5 manna lið á þessum vef. Við munum einnig taka uppá nokkrum nýjungum en ef þið kæri lesendur hafið einhverjar hugmyndir um hvað þið viljið sjá meira af hér, þegar ný síða fer í loftið þá getið þið sent tölvupóst á netfangið

jonasymir@gmail.com

Fyrir hönd fhingar.net

Jónas Ýmir Jónasson



Fim 25.jún 2009
Fram - FH - Upphitun
FHingar leika sinn níunda leik í deildinni í kvöld þegar þeir gera sér ferð í laugardalinn og heimsækja þá bláklæddu í Fram. Leikurinn er reyndar í 13.Umferð en það er vegna þess að bæði liðin taka þátt í Evrópukeppni, en aðeins er um mánuður síðan að liðin mættust í Kaplakrika.
MEIRA
     Eldri fréttir >>
Staðan

Sæti Félag Stig
1. FH 30
2. Stjarnan 20
3. KR 21
4. Fylkir 20
5. Valur 13
6. Keflavík 11
7. Breiðablik 8
8. IBV 6
9. Fram 5
10. Þróttur 5
11. Fjölnir 4
12. Grindavík 4

Markahæstir

Atli Viðar Björnsson 5
Matthías Vilhjálmsson 5
Atli Guðnason 4


Síðustu leikir

5 4 3 2 1
U U U U U

 

 


Síðasti leikur

Pepsi-Deildin
Fram - FH
0 - 2
25. Júní

20:00

Laugardalsvöllur

Næsti leikur

Pepsi- Deildin 2009
IBV - FH
Vestmannaeyjar

19.15

28. Júní


Hraunhamar Saltkaup Avion Group Fasteignasalan Ás Dominos